Ég fattaði áðan að hljóð sem ég er búinn að vera að heyra kemur úr
gírkassanum, eða allavega nálægt honum. Ég heyri hljóðið mjög vel ef ég
beygi mig niður hjá gírstönginni og er á ferð. Ég hélt að hljóðið væri í
afturhjólinu af því ég slædaði á kant um daginn en svo virðist ekki vera.
Þetta er eins og járn í járn en samt ekki stanslaust, tikkar svona
nokkurnveginn en samt lengri tikk en í klukku. Þetta heyrist ekki jafn vel
þegar ég bakka eða eiginlega ekki neitt. Mér líður allavega illa að keyra bílinn
svona og ætla aðeins að hvíla hann þangað til ég veit nokkurnveginn hvað
þetta er. Ég vona svo innilega að þetta sé ekki inní kassanum sjálfum en
hvað haldið þið?



