Vargur wrote:
Hvað finnst ykkur sem kíktu á sýninguna, er þetta peningana virði ?
Ég hef ekki farið á bílasýningu í nokkur ár vegna þess að ég fékk ógeð af því að borga mig dýru verði inn á sýningar þar sem flestir bílarnir voru með "Til sölu" miða í framrúðunni og stór hluti af sýningaplássinu fór undir bása fyrir fyrirtæki sem voru að auglýsa þjónustu sína.
Ég fékk allavega nóg af því að borga fjölskylduna inn á auglýsingu.
Til gamans má geta að ég hitti fyrir nokkrum árum mann sem var nýbúinn að því að setja upp svona helgarbílasýningu ásamt syni sínum og hann hló að þessum "bílanördum" sem hann kallaði svo og sagði að milljónirnar sem þeir feðgar fengu í hagnað af sýningunni hefði verið auðveldasti peningur sem hann hefði náð í.
Þótt þetta sé nú ekki ódýrt þá var þessi sýning klárlega þess virði. Jú, það voru þarna einhver fyrirtæki að kynna þjónustu sína, en ekkert yfirgengilegt. Bílarnir voru klárlega í aðalhlutverki þarna og margt sem var mjög gaman að sjá.
Ég verð nú samt að nefna það að mér fannst básinn hjá Bifreid.is alveg hlægilegur, greyið þristurinn sem þeir voru með þarna, hann var orðinn frekar hrísaður greyjið

_________________
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn"
