Þekkir einhver hér, eða veit um einhvern hér sem veit hvernig svona virkar.
Í Evrópu er mikið notað LPG, eða Liquid Petroleum Gas. Við erum ekki með þannig lagað á bíla okkar hér á Íslandi. En við höfum CNG, Compressed Natural Gas, eða Metan.
Eru þessi kerfi eins, er hægt að nota petroleum kerfi fyrir jarðgas?
Getur maður keypt LPG bíl og notað á hann Metan?
Þetta er áhugaverð pæling, maður fær afslátt á innflutningi bíls sem er með svona kerfi og allez
Hér er áhugaverður tengill:
http://cgi.ebay.de/Erdgas-BMW-735-i-TUV ... dZViewItem
Ef maður skellti sér á svona fyrir 1500 EUR, flytur þetta heim og fær afslátt af innflutningnum gæti maður verið að horfa á svona 300 kall fyrir bílinn heim kominn!
Það væri gaman að fá að vita hvað menn sem VITA EITTHVAÐ um þetta hafa að segja. Hinum sem vita lítið en vilja endilega skrifa eitthvað er velkomið að láta ljós sitt skína líka




