Þetta er nú bara vél eins og aðrar.
Það gilda alltaf sömu reglurnar þegar kemur að því að breyta vél til að ganga með túrbó og því hægt að lesa sig til um það á mörgum spjöllum.
Samt sem áður þá eru strákarnir á
http://www.pure-pf.com/phpBB2/index.php
Spjallinu ekkert smeykir við að setja á þetta turbo.
S38 tekur blæstri alveg gífurlega vel enn það verður að lækka þjöppu samt sem áður það myndi ég í þessu tilviki segja að það kalli á stimpla (850-1200$)
Þeir sem hafa látið smíða fyrir sig turbo greinar á íslandi hafa verið að komast upp með 50k cirka (græni audi, bláa primeran) 4cyl og 5cyl,
Enn það eru strákar með mekaníska hæfileika og góð sambönd, að borga fyrir turbo grein sem er góð myndi ég gera minnst ráð fyrir 100k, mikið líklegar 120k.
Getum talið þetta snöggt
Turbo grein - 120k
Turbo sem hentar - frá 100k , Holset af ebay.com upptekin svo á íslandi (HX40-HX55)
Stimplar , 90k enn staddir í USA
Spíssar - 25k enn staddir í USA
Kúpling - UUC M5 Race clutch. 45k enn stödd í USA
Púst - 70k í BJB cirka
VEMS innspýtting - 105k með skynjurum, ekki í komið og ekki tjúnað
Þar er kominn 555k og enn á eftir að kaupa
wastegate, blow off ventil, intercooler, intercooler rör, kerti, borga tolla af sumu af listanum,
FYI.
http://www.pure-pf.com/webshop/ppf_webs ... cts_id=221
Það ER til pústgrein fyrir turbo S38.
það sem menn þurfa að athuga að hérna er eftir að athuga hvernig ástandið á vélinni er, þjappa legur, pakkningar og allt samann,
Gera ráð fyrir fjöðrunar breytingum og bremsu breytingum.
Turbo S38 á íslandi myndi ég skjóta á að væri 1.2-1.5mill pakki
gefandi cirka 600-700hö.
Það er hvers manns álit hvort það sé þess virði.
Kaupa E34 M5 að utan vitandi að maður ætlar að gera turbo
milljón fyrir M5 + 1.5mill = 2.5mills fyrir 600-700hö
Þegar maður lítur á það þannig er þetta bara bargain

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
