bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 09. Jun 2025 15:21

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 21 posts ]  Go to page Previous  1, 2
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Mon 28. Apr 2008 15:23 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sun 12. Aug 2007 21:22
Posts: 221
Location: Reykjavík beibí
Auðvitað eru sjávarútvegsmálin mikilvæg í þessari umræðu en það er ekki útilokað að Ísland fái einhverja undanþágu frá því að sigla undir sjávarútvegsstefnu ESB.

En mér finnst að við eigum að hefja einhverjar aðildarviðræður/sækja um aðild og sjá hvort það sé ekki hægt að leysa þessi mál. Því það á svo eftir að taka sinn tíma að fá aðild líka að EMU og taka þá (eftir vonandi ekki allt of langa mæðu) upp evruna.

_________________
Skáeigandi e30
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 29. Apr 2008 09:37 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
"Land, sem gengur í myntbandalag, fórnar sjálfstæði sínu í peningamálum ...
... það fórnar frelsi sínu til að stjórna peningamálum, t.d. vöxtum, á eigin spýtur …
… og þar með getunni til að bregðast við áföllum með því að breyta gengi eigin gjaldmiðils með gamla laginu
Ekki er hægt að breyta því, sem ekki er til"

Skv. SGP (Stability and Growth Pact):
* an annual budget deficit no higher than 3% of GDP (this includes the sum of all public budgets, including municipalities, regions, etc)
* a national debt lower than 60% of GDP or approaching that value.

Veit ekki hvernig þessar tölur koma út þegar að öll bæjarfélög etc eru tekin í myndina, eina sem er talað um er að ríkið sjálft er að verða skuldlaust.

Svo augljóslega þarf að vera stöðuleiki í efnahagsmálum áður en þessi aðild er íhuguð. Þetta er ekki töfralausn(sbr ofan)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 29. Apr 2008 10:08 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45
Posts: 5844
Íslenska krónan er skítur...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 29. Apr 2008 10:20 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
maxel wrote:
Íslenska krónan er skítur...


Ekkert að krónunni, myndarlegur gjaldmiðill


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 29. Apr 2008 14:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
maxel wrote:
Íslenska krónan er skítur...


Og rökstuðningurinn er... ?

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 30. Apr 2008 17:15 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Svezel wrote:
Stanky wrote:
gunnar wrote:
Kvótinn hefur nú spilað þarna svolítið inn í ekki satt.


Endalaust hægt að röfla um þennan kvóta. Alveg orðið nett þreytt.

Ef þú skoðar lista yfir 300 stærstu fyrirtæki landsins, þá eru fjármála og þekkingarfyrirtækin á toppnum. (Listi frá 2006)

Sjáum nú til.

Samherji kemur inn í 24 sæti, lækkar um 3 sæti frá 2005.

Það sem kemst síðan næst fiski-tuðinu er Marel, í 34 sæti, en þeir framleiða róbóta fyrir fiskiðnað.

HB Grandi kemur inn í 41 sæti, fellur um 3 sæti frá árinu 2005.



Síldarvinnslan kemur inn í 57 sæti, fellur um 8 sæti, frá 2005.

Skinney kemur svo í 73 sæti, hækkar um heil 30 sæti frá 2005.

Þorbjörn kemur svo í 79 sæti, hækkar um 5 sæti.

Brim 81 sæti, fellur um 20 sæti.

Ísfélagið 90 sæti, fellur um 31 sæti.

Þorm. Rammi Sæberg, 91 sæti, fellur um 19 sæti.

Á þessum lista eru:
18 fyrirtæki tengdum þessum "frábæra" kvóta, af 300 fyrirtækjum.

Listinn er byggður upp á veltutölum frá skattstjóra ríkisins, þau fyrirtæki sem hafa lækkað, hafa augljóslega velt minni peningum heldur en fyrra ár :).

Þetta segir það sem segja þarf varðandi að "missa" kvótann.


Beint í Evrópusambandið að mínu mati, kvótinn er ekki issue :)


ekki vera heimskur, það eru útflutningstekjur sem telja, ekki eitthvað pokabrask milli Íslendinga


Flokkast útflutningstekjur ekki undir veltu?

Ef svo er, þá biðst ég afsökunar.

Ef það er ekki, þá ætla ég að biðja þig um að vera ekki heimskur.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 21 posts ]  Go to page Previous  1, 2

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 33 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group