Jæja, bíllinn minn er bilaður.
Heddið eða heddpakkningin, jafnvel bæði er farið í bílnum mínum. Mér er sagt að það kosti um 200þúsund kallinn að láta laga þetta á verkstæði.
Þá hefur mér verið sagt af nokkuð kunnum og reyndum manni í bílaviðgerðum að það gæti jafnvel borgað sig fyrir mig að finna aðra vél til að setja í, það sé minna mál að skipta um vél heldur en að láta tæta vélina sem er í bílnum í sundur til að komast að heddinu.
Hvað segja bmwkrafts-spjallarar um þetta? Einhver sem hefur reynslu af þessu og getur gefið mér meðmæli um hvað gera skal...
ég geri mér grein fyrir að hvorn kostinn sem ég kem til með að velja mun það kosta sitt.
Ég vil bara fá álit frá ykkur og jafnvel einhverjar reynslusögur.
**bætt við: þetta er BMW 316i ´97 árg.

