xtract- wrote:
bimmer wrote:
gstuning wrote:
Ég er að tala um frásagnir manna hérna um hvort hóf lætin.
Það voru bílstjórarnir sem mættu
fyrst og lokuðu veginum.
Alveg á tæru hverjir byrjuðu þessa atburðarás.
löggan var nú á staðnum þegar þeir mættu

Já þetta var einmitt þannig, Löggan mætti til að berja bílstjóra og þess vegna ákvæðu bílstjórarnir að mæta á þessa bensínstöð því að kaffið þar er víst frábært. Taka skal fram að þeir voru ekkert að mótmæla, heldur bara í pásu eins og einn sagði í viðtali við RUV.
Það að menn voru búnir að kaupa sér startsprey og WD-40 sem þeir ætluðu að úða á lögreglu (sögðu það í viðtali við sjónvarpsmann) sýnir ekki á nokkurn hátt að bílstjórarnir ætluðu að vera með vesen, þeir ætluðu bara að vera klárir ef einhver bíllinn hefði annaðhvort stífnað í svissinum eða væri orðinn blautur á kertunum. Þetta átti alltaf að fara friðsamlega fram að sögn bílstjóra á meðan þeir munduðu WD40 brúsann.
Já og viðbrjögð lögreglu voru alltof hörð! svo hörð að bílstjóranir ætla að beita meiri hörku en lögreglan hefur gert, það var lagið.
Svo sýndist mér bílstjórnarnir vera allir að vilja gerðir að færa trukkana, eina var að löggan stóð í vegi fyrir þeim þannig að þeir gátu ekkert fært þá. Eina leiðin var að reyna að ryðjast í gegnum varnarmúr viðbragðssveitarinnar, bara stælar í löggunni að vilja ekki færa sig.
Svo þetta með piparúðann... alveg stórhættulegar svona löggur sem öskra GAS GAS GAS GAS. Löggurnar sem sprauta bara og segja ekkert eru ekki nærri eins hættulegar, hrikalega óþægilegt að fá piparúða í augun eftir að einhver er búinn að segja að maður sé líklegur að fá úða í augun ef maður færir sig ekki. Miklu verra en að fá bara úðann beint án aðvörunar, svona eins og þegar maður rífur plástur af.
En þessi úði.. ppffftt löggan kann ekki einu sinni að nota hann, úðaði bara út í loftið þannig að það hitti ekki nokkurn mann, löggan hefur varla ætlað að úða yfir mannhópinn og fæla hann burtu án þess að meiða nokkurn mann (kanski einn eða tvo).
var þetta ekki c.a. svona?