by Hlynzi » Sun 19. Oct 2003 21:50
Jæja, ég skal telja þetta upp.
Ég kann ekki allt að nefna af Quad stæðunni frá Rafgrein. bara geislaspilari, formagnari, og kraftmagnari. Þetta réð við hátalarana svona ágætlega, en ekki nóg power.
Stóra stykkið á bassaboxinu mínu (trélitaða, ljósi kassinn) er Pioneer M-22. Þrælöflugur magnari, af A-class flokki (ákveðin tegund magnara)
Svo má telja plötuspilarann minn frá Pioneer, og Pioneer magnarann SX-626.
Hátalarasnúrurnar voru frá supra, eða Rafgrein, ásamt svarta bassaboxinu, Tannoy. Helvíti flott sound í þessu, mér fannst M-22 hafa yfirhöndina, útaf útrúlegum krafti. Ég er með hann heima hjá mér og ljósin flökkta ef ég tjúnna nóg upp í þessu.