Þá er búrið loksins komið og beltin keypt. Ég fór í 5punkta 3" street legal sem þýðir að þau eru með normal buckle en ekki svona snúnings eins og er gjarnan í Race bílum. Ég get bara samt ómögulega skilið af hverju "Race" útgáfan er ekki street legal í Lúx, en þetta er víst rosa mismunandi milli landa.
Bíllinn fer á verkstæðið í dag/morgun í nokkrar aðgerðir.
1. Búrið
2. Beltin
3. Kúpling
4. Brettaútvíkkun að framan
5. bremsuklossar að aftan
Þá ætti hann að vera orðinn klár fyrir sumarið (og jafnvel komandi ár).
Ég setti slikka undir að framan áðan á CH felgurnar (235/40-18) til að verkstæðið gæti séð hvað það þarf að víkka brettin mikið.
Svo er spurning um miðjuna í pústinu. Ég las áhugaverðan póst á Bimmerforums. Þar var einn aðili sem skipti út orginal miðjunni fyrir Supersprint Race de-cat rör (alveg eins og ég). Hann tapaði midrage poweri og er með pre/post gögn til að sanna það. Auk þess fór bíllinn að ganga "taugaveiklað" í hægagangi (sem ég þekki líka). þess vegna er alveg spurning um að fara aftur í hvarfana. Soundið breytis jú en það er s.s. ekki stórmál.
Þetta munar samt töluverðu í þynd, líklega hátt í 15-20kg. En sú þyngd er samt mjög neðarlega og ef ég fæ smá midrange tog í staðin.
Hvað finnst ykkur?
Pósturinn
hér