by jens » Fri 18. Apr 2008 15:32
Sem er bara gott.
Var einmitt að tala um þessa ólæknandi dellu við Aron Jarl í vikunni.
Raunverulegt dæmi:
´98 ákvað ég að fara í að byggja og átti þá gullfallegan E30, strax og ákvörðun var tekinn að fara í framkvæmdir seldi ég E30 og bað B&L að senda mér eins nýjan og einfaldan bíl og peningurinn dugaði til, ég fékk sendan reno 19 exe. Ég átti hann í fleiri ár og var læknaður af bíladellunni, engin óþarfa peninga útlát og ég notaði peninginn minn í skynsama hluti. Svo var mér bent á kraftinn BÚMMMM. Síðan hef ég ekki gert annað en að eyða peningum og tíma í ólæknandi bíladellu.
Eru fleiri sem líður eins.

E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter