Sælir félagar,
Ég ætla að gera ykkur það að spyrja um þetta EN... ég ER BÚINN að nota leitina og fékk alveg einhver svör þar...
Spurningin:
*Hvar er hægt (ef mögulegt) að láta pólera lip á felgum þannig að þær verði svona háglans.
*Hvað er það að kosta o.s.frv.
Ég sá í einhverjum þræði að Áliðjan eigi að vera að gera þetta en einhverjir ekkert mjög ánægðir með útkomuna.
*Einnig var talað um að menn gætu gert þetta bara sjálfir?
*Svo er hin spurningin, ef menn hafa pólerað felgurnar er þá málið að láta húða yfir það eða er bara betra að sleppa því, vera duglegur að þrífa?
Hver er að polýhúða svona.´
Ég veit að þessi spurning hefur komið oft upp en það virðast ekki hafa komið neitt sérstök svör, þeir sem hafa látið gera eftir að hafa athugað þetta hafa ekki komið með svör eða verð.
KV. Dabbi Sig




