Nú var ég að rúnta með Bjarka í gær. Mjög skemmtilegur rúntur, miðbærinn gjörsamlega troðfullur af einhverju blindfullu pakki að sunnan sem var gaman að gera grín af.
Nema hvað, Bjarki sjálfur öðlingurinn sem hann er leyfði mér að taka nokkra hringi á 540 bílnum sínum, þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem ég keyri þann bíl en djöfull sem það er gaman. Sérstaklega eins og þegar ég fór að taka nokkur "rönn" við einn Honda Civic VTI.
Það var alveg ljóst frá fyrsta rönni að gaurinn á Civic kunni vel inn á bílinn sinn og ég þorði ekki heldur að taka mikið meira en 1-2 og helminginn af 3 því að þá er maður kominn hættulega nálægt prófmissi.
Hvað eruði að taka hröð rönn svona c.a.
Í gær þegar ég var kominn í 3 gír þá sá ég að Civicinn hafði ekki nærri því sömu hröðun og bimminn þótt stór sé og því ákvað ég að slá af áður en hraðinn væri of mikill.


