Jæja þá hef ég bætt við einum V12 í safnið.
Um ræðir:
BMW E32 750 M70 ekinn 216.xxx km
Steingrár
LSD
Leður
Sportstólar með rafmagni og hita framí
Nýlega sprautaður
Shadowline
Undir honum eru frekar aulalegar 16" felgur og auðvitað er planið að bæta úr því seinna í sumar.
Ég hef verið pæla í hvort ég ætti að stefna á lækkunarsett svona til að minka fendergap-ið að framan eða svartholið eins og ég kýs að kalla það
Ég er bara svoldið hræddur um að hann verði enn stýfari við það og eins og staðan er nú á vil ég ekki að hann stífist meira.
Ég fékk bílinn síðastliðinn mánudag (ég veit að maður á ekki að kaupa bíla á mánud). Fyrsta rúnturinn endaði ég STOPP á ljósunum Grensás /Mikklabraut

altanetorinn var kaput.
Ég fékk Bjögga bróðir með mér í lið við að kippa honum úr og Kiddi í Rafstillingu reddaði þessu. Eða gerði hann upp. Og nú startar hann og hleður eins og vindurinn! + nýr 105 Ah geymir.
Ég tók hann og þreif á laugardag og ég get ekki sagt annað en að bíllinn sé alltaf að koma mér betur og betur á óvart. Hversu heill hann er og óslitinn. En það var einmitt það sem heillaði mig þegar ég skoðaði hann.
Ég treysti mér til að fullyrða að þetta er einn af betri E32 M70 bílum á landinu. Ég ætla alls ekki að segja besti (svona til að gera nú ekki allt brjálað), en alveg pottþétt topp 5 eintak. Ég þarf að sýna ykkur hann á næstu samkomu.
Það eina sem gera þarf fyrir bílinn er að laga smá víbring sem kemur þegar verið er að keyra hann upp. Á ca. 40 km/h þetta er mjög vægt. Gæti verið liðir á skafti, skiptingapúðar, drifpúðar eða eitthvert annað gúmmi.
Síðan held ég að það þurfi að skoða annað hvort sjálfskiptitölvuna eða vélatölvuna. Þegar hann skiptir sér þá slær hann ekki af vélinni á meðan eins og hann á að gera til að fá mýkri skiptingu og hlýfa skiptingunni. Ég er ekki byrjaður á að lesa mér til um þetta en ef þið vitið hvað það er þá endilega látið mig vita. Ég vil ekki hafa hann svona, þetta er svipaður fílingur og að aka gömlu amerísku fjósi þegar hann skiptir sér í rólegum akstri.
Annars er skiptingin hrikalega þétt, það vælir ekkert í kúpplingunum í akstri alveg silent!
Það eins sem heyrist er grimmilegt vélahljóðið í M70 vélinni. Það ætti bara að vera bannað að setja útvarp í þessa bíla. Maður hefur ekkert við það að gera
Jæja ég er kominn á kaf í lóðningar.
Bílinn hrjáði þetta klassíska "mustard realy" vandamál. Þetta lýsir sér í því að OBC er sífellt að koma með fölsk boð um sprungnar ljósaperur. Ég sem þokkalega vel lesin E32 hneta var nokkuð snöggur að átta mig á þessu og reif "sinneps" relay-ið úr og lóðaði það upp, og viti menn þetta svínvirkaði.
Ef rýnt er vel í lóðningarnar þá má sjá að þær eru rofnar á sumum stöðum
og eftir viðgerð
