ömmudriver wrote:Fallegur bíll hjá þér og þessi innrétting er nú bara merkilega flott verð ég að segja

Þakka þér... innréttingin venst, fyrst fannst mér þetta ALLLLLTOF grænt. Ég var alveg á mörkunum með að kaupa þennan bíl einmitt út af þessum lit á innréttingunni en hestöflin vega ágætlega upp á móti.
Það er samt alveg ljóst að það þarf að laga lakkið aðeins betur. Svo þarf að samræma litinn á ljósunum að framan, park, hái og þoku eru halogen en xenon í lága geisla. Það er búið að koma iPodinum í samband (Alpine + iPod) og þagga niður í þjófavörninni (nýr rafgeymir). Svo má hann alveg við öööörlítið stærri felgum en þessar 17" eru alveg ágætar fyrir vetrardekk, sem hann er á núna. Ég veit ekki hvort maður ætti að fara út í 19" (hvað þá 20") því ég keyri talsverða langkeyrslu og maður vill ekki fórna ride-comfort alveg, vegirnir minna á sig talsvert harkalega enda hefur VegaSKEMMD ríkisins stundað skipulögð hryðjuverk á þjóðvegum landsins svo áratugum skiptir.