Sælir.
Mig vantar að nálgast eins miklar upplýsingar um þennan bíl og ég get fengið.
Ég keypti hann áðan til að rífa af honum frambretti, hurð og dekk sem ég ætla notan til að lappa aðeins upp á minn e38.
Bíllinn var keyptur lyklalaus og læstur þannig að ég sá aldrei ofan í húddið. þannig að ef einhver veit hver var eigandinn af honum þá væru það vel þegnar upplýsingar, einnig hverskonar 7 þetta er? 730,735 eða 740. Ef einhver veit hvað er að honum væri það einnig fínt.
En eins og sagði í fyrirsögninni þá er bíllinn með gyllt nýru og gluggalista. Held að það sé líka búið að sprauta gylltu yfir hann allan, en hann er svartur að lit með tauinnréttingu og topplúgu.
Hendi kannski inn myndum af honum ef ég nenni að finna svæði til að vista þær á.
Kv.
Boggi með 2.stk E38 í stæðinu...


