Núna í April, nánar 26. apríl eru 22 ár liðin frá einu stærðsta umhverfisslysi í mannkynnssögunni. - Chernobyl.
The True Battle of Chernobyl Uncensored
Myndin er sirka 90 mín eða einn og hálfur klukkutími.
Mæli með því að allir horfi á þessa mynd, og að þið bendið öðrum á hana.
Þótt það vanti ýmislegt eins og t.d. afhverju sprengingin sjálf varð og fleyra slíkt þá er ýmsar nýja upplýsingar og fullt af flottum video-myndum sem ekki hafa sést áður.
Þetta er ein af flottari heimildarmyndum um slysið sjálft og baráttuna eftir það.
-
Þið verðið að fyrirgefa mér að þetta er algjörlega Off Topic hérna á kraftinum.
Málið er að ég hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á að vita meira um Chernobyl en í rauninni litlar upplýsingar að fá.
Ég er svo hræddur um að fólk geri sér engan vegin grein fyrir hversu alvarlegt þetta var og í raun er. Þetta er ekki bara eitthvað sem einu sinni var, heldur er þetta eitthvað sem einu sinni var, er og verður.
Fyrir tveim árum, eða þegar 20 ár voru liðin frá slysinu kom alveg hellingur af nýjum upplýsingum inn á netið.
Ég skrifaði smá óvandaða grein og setti inn á nokkrar spjallsíður þar á meðal þessa ef ég man rétt. Ég komst að því þá að það er að vaxa úr grasi heil kynslóð sem veit nánast ekki neitt um þetta slys. Og í leit minni af upplýsingum náði ég msn sambandi við nokkra unglinga á aldrinum 15-20 ára sem búa í Kiev sem er höfuðborg Úkraínu sem er aðeins um 150 km frá Chernobyl. Ég komst að því að þau vissu lítið meira en unglingar á íslandi, annað en þetta væri kalla eitraða svæðið og þau vildu ekki fara þangað og gætu lítið meira rætt um það því þau vissu svo lítið um þetta.
Einnig er lítið talað um að varnarbyggingin sem byggð var yfir ofnin var upprunalega byggð með það í huga að endast 20-30 ár og var byggð með miklum hraða í stað vandvirkni, það er víst virkilega farið að sjá á þeirri byggingu í dag. Þeir sem fylgjast með byggingunni eru skit hræddir um að ef byggingin myndi hrynja þá gæti orðið annað eins mengunar slys og varð 1986, jafnvel verra því þeir halda að það sé alveg hellingur af geisla-meinguðu regnvatni inni í byggingunni.
Það eru til plön til að byggja yfir þetta allt, sem ætti að vera öruggt allavega næstu áratugina en Úkraína á ekki þá peninga til og Evrópa eða önnur lönd could care less. Og eitt af því er afþví vitneyskjan um hættuna sem liggur þarna er ekki til staðar.
Það fór kjarnorkuský yfir alla evrópu og náði þar á meðal hingað til íslands, þá vissi fólk ekki hvað þetta þýddi eða hver hættan af þessu gæti verið. …þessvegna eru allir þeir sem fæddir eru 1986 og seinna svona eins og þeir eru.
Frakkar neituðu lengi vel að nokkuð hafi farið yfir Frakkland.
Jæja, ég ætla allvega að hætta röfla hérna og bara mæli með því að þið eyðið tíma í að kíkja á þessa mynd, held að allir hefðu gott af því.
Hérna er staðsetningin í earth google:
51°23'22.39" N 30°05'56.60" E
Skoðið hvað þetta í rauninni er nálægt okkur.
51°09'14.05" N 29°58'56.53" E
Þarna er svæði þar sem öll tæki sem notuð voru við aðgerðirnar 1986 voru settar. Þyrlurnar sem eru þarna eru enn þann dag í dag það geislavirkar að það er lífshætturlegt að fara nálægt þeim.
Nú er Pollland næsta land við Úkraínu, ég mana ykkur til að prófa að tala við næsta pólverja sem þið þekkið og tjékkið á því hvað þeir vita mikið um Chernobyl og hættuna sem þar leynist. Er nokkuð viss um að þeir viti óskup lítið meira en að þetta gerðist og þetta hafi verið svaka kjarnorkuslys.