IvanAnders wrote:Angelic0- wrote:Alpina wrote:Aron Andrew wrote:Ég get mælt með KW dempurum, hef ekki neina reynslu af öðru en þeir eru góðir

með réttum gormum já..
Ég fékk Kw hjá Óskari ,,mjög gott stöff,, en ef þetta er ekki rétt setup
gormur+dempari þá er hætta á að demparinn skemmist fljótlega
Ég veit um E30 sem að er með ódýra coilover gormadótinu frá GStuning + KW demparar... og það er að virka MJÖG vel saman

Ég hef bara setið í bílum með ódýra coilover dótinu og stock dempurum...
Ógeðslegri fjöðrun finnst ekki!

Besta dæmið um að fá það sem að þú borgar fyrir!!!!
Ódýrasta leiðin, og sú versta í leiðinni!
Hey Ívar, auðvitað er það ömurlegt að vera með coilover og stock dempara!!
Stock demparar bjóða ekkert uppá að fjaðra svona stutt, og hvað þá svona neðarlega.
Þetta diss á þessa coilovers er farið að fara í taugarnar á mér, sérstaklega þegar eina reynslan er af svona svona skítamix setupi!
Þetta er ódýrt, það er alveg rétt, en gormarnir eru stífir og virka flott með dempurum sem eru fyrir svona gorma.
Vá þetta er bilað bitur póstur en fokkit
