Það er greinilegt að 750iL bimminn sem ég keypti saknar fyrri eigenda ógurlega. Hann rekur reglulega upp harmakvein hér út á plani hjá mér. Harmakveinin eru stutt flaut og blikk í takt á stefnuljósunum. Ég er bæði búinn að prófa að læsa með fjarstýringunni og hreinlega setja lykilinn í og snúa. Það er ekki hægt að læsa og svo loka (skynsöm skepna...).
Stundum byrjar hann mjög stuttu eftir að maður læsir, stundum líða einhverjir tugir mínútna. Eina leiðin til að fá hann til að þegja er að hafa hann ólæstan, sem er e.t.v. ekki mjög góð hugmynd.
Eina sem mér dettur í hug er að þetta sé einhver ofvirkni í þjófavörn? Er einhvern veginn hægt að læsa bílnum án þess að setja þjófavörnina á?



