bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 08. Jun 2025 13:45

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 120 posts ]  Go to page 1, 2, 3, 4, 5 ... 8  Next
Author Message
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 08:17 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Mon 11. Apr 2005 23:47
Posts: 30
Location: RVK
Já hæ... held þetta sé jafnvel fyrsti pósturinn minn á þessu spjalli en mig langaði bara að heyra ykkar sögur af ákveðnum spjallmeðlim?

Þannig er mál með vexti að á bíladögum 2006 keyrði ég norður á akureyri á jeep cherokee '88 (88 model minnir mig, getið flett uppNE-058 og fengið nákvæma árgerð.. man ekki árgerðina 100%, átti bílinn það stutt :roll:). Ferðin hófst á föstudeginum 17. júní ef ég man rétt - man að ég missti af götuspyrnunni þar sem ég ákvað í minni góðmennsku að snúa við frá nyrðri enda Hvalfjarðarganga og halda beinustu leið í bæinn á eftir vinkonu minni. Komst til Akureyrar á endanum og var bara mjög gaman hjá mér og gisti ég í mínu glænýja Útilífstjaldi. Skemmtunin þetta kvöld var frekar mikil og endaði kannski með því að þráðarhöfundur varð örlítið ölvaðari en áform voru um. (svo sem ekki í fyrsta skipti sem það gerist :oops: :) )

Laugardeginum eyddi ég í gríðarlega þynnku sem varði langleiðina fram að miðnætti. Eftir að hafa nánast jafnað mig á þynnkunni ógurlegu keyrði ég niður eftir að Kjarnaskógi og hitti þar fullt af liði og ákvað að fá mér nokkra bjóra. Kvöldið var fínt og allt í góðu, og þegar kom að því að fara upp á tjaldsvæði hitti ég Angelic0 nokkurn á bílastæðinu og spjallaði aðeins við hann. Hann virtist fínasti gaur og allt það og bauðst til að keyra mig og vinkonu mína upp að tjaldsvæðinu. Það skutl gekk svo vel fyrir sig að við komumst heilu höldnu upp að tjaldsvæði eftir mikið (og vafalaust mjöög skemmtilegt) malarspól af hálfu umrædds bílstjóra (Angelic0) á bílastæðinu. Ef ég hugsanlega myndi númerin á þessum bílum sem stóðu þar á planinu, og jafnvel urðu þar fyrir grjótbarði, gæfi ég þau upp svo ég gæti beðið eiganda þeirra bíla afsökunar á hegðun "míns bíls".

Eftir skutlið ágæta kíkti ég inn á tjaldsvæðið en sá bílstjórann (Angelic0) svo keyra í burtu á bílnum mínum, og ég eins vitlaus og ég er, ekki með símanúmerið hjá kauða, horfði á þetta gerast eins og þetta væri besti vinur minn að keyra - enda hélt ég að ekki væri ástæða til annars - ég meina, virkaði fínasti gaur og allt það. Þetta kvöld fékk ég mér 2-4 bjóra (ótrúlegt en satt þið sem þekkið mig og mínar drykkjuvenjur) og gat ekki meir. Vakti ég alla nóttina og reyndi að drekka, en skemmti mér samt sem áður með öllum hópnum. Endaði það með því að ég vakti fram á sunnudagsmorgun, en framhaldið af þeirri sögu getiði lesið á eftir næsta lið.

Sunnudagurinn 19. Júní 2006
Þennan ágæta dag eyddi ég heillöngum tíma í að komast að því hvar blessaður bíllinn var niðurkominn; komst þó að því á endanum að hann stóð í götu (nálægt bröttu rúntgötunni sem liggur framhjá sundlauginni :idea: ) í svosem svipuðu ásigkomulagi og ég lánaði kauða hann - hélt ég. Ég var voðalega feginn að finna bílinn og kominn í heimferðarhug, en fann hvorki lykla af bílnum né neitt, þannig ég hafði samband við umræddan aðila og fékk frá honum mismunandi svör. Á endanum kom í ljós að hann hafði "skilið lyklinn eftir, í samráði við lögregluþjón, uppi á lögreglustöð. Jæja ég fyrirgaf honum það nú þegar ég á endanum fékk lykilinn og allt í góðu. Seinna frétti ég frá Angelic0 að hann hefði stöðvað bílinn og ætlað að gera tjónaskýrslu þar sem hann hefði óvart rekist aftan á Toyota Corolla bifreið og tjónað hana. Ég sagði honum að ég vildi ekki taka það beint á mig en með ákveðnum munnlegum samningum taldi ég það verða allt í lagi á endanum; þ.e. aðalsöguhetja þessa þráðar vildi festa kaup á bílnum og þar af leiðandi eigna sér þetta "litla" (litla - þá treysti ég orðum umrædds viðskiptamanns) tjón. Ég sagði félaganum að þetta væri bíll sem mig langaði að eiga, enda kostaði hann ekki mikið og var bara fínasti bíll allt frá því ég keypti hann!!

Lagði ég þá í hann á sunnudeginum um hádegisbil, eftir að hafa náð að redda þessum málum - fyllti tankinn við bæjarmörkin og taldi mig vel settan. Aðeins eitt gat komið í veg fyrir ánægjulega ferð suður, og það var þreyta. Ég hafði vakið alla nóttina áður og var þar af leiðandi ekki nógu vel úthvíldur. Það kom betur í ljós þegar ég kom í Varmahlíð, enda var ég búinn að keyra alla leið þangað með nánast aðeins annað augað opið. Þá lagði ég bílnum á bílastæði þar og ætlaði að leggja mig í nokkra tíma svo ég gæti svo haldið áfram rólegur í bæinn. Þá kemur til mín sami maður og bauðst til að skutla mér, á mínum bíl, upp að tjaldsvæði á laugardagskvöldinu, og bauðst í þetta sinn til að keyra bílinn minn í bæinn - með mig innanborðs. Ég, í minni þreytu og einum of miklu trausti til þessa manns, ákvað að þyggja það boð og settist drengurinn þá undir stýri á bílnum.

Ferðin hófst frá Varmahlíð eftir smá stopp og varð mér stuttu seinna ljóst hvernig líðan bílsins væri; hræðileg. Ég ætla ekki að gefa upp neinar hraðatölur til að verja umræddan mann frá hraðasektum og öðrum slíkum áróðri, en ég get sagt ykkur það að þessi bíll hafði hugsanlega aldrei keyrt jafn lengi á jafn háum snúning og miklum hraða. Við erum að tala um það að umrædd sjálfrennireið var að keyra á margföldum hraða vel rennilegra BMW bifreiða af öllum gerðum - athugið engar staðhæfingar í gangi hér um hraða BMW bifreiða. Minntist bílstjórinn á það hvað eftir annað að hann langaði til að festa kaup á umræddri bifreið - ég eins og áður var ekki til í það, þar sem bíllinn hafði reynst eins og hetja þessa 600km sem ég hafði keyrt hann fram að þessu.

Þegar við stoppuðum í Staðaskála kom í ljós hitavandamál á jeppanum og var það skýring ónefnds manns, og vinar umrædds bílstjóra, að þetta væri eitthvað tengt viftukúplingu. Ég eins og bjáni gleypti við því, enda vit mitt á bílum þessa daga ekki upp á marga fiska. Þá var það farið að renna upp fyrir mér að virði bílsins var farið lækkandi og ég orðinn jákvæðari á söluna.

Eftir stoppið í Staðaskála var haldið suður á leið enn á ný. Ekki virtist bílstjórinn umræddi gefa mikið fyrir mínar óskir um að keyra rólega, enda hélt snúningshraðamælirinn áfram að elta sama strikið og hraðamælirinn sleikti stærra strikið, á góðri leið upp að tvöfalt-ólöglegum hámarkshraða. Var það svo ákveðið þegar loks var til Reykjavíkur komið, að næsti eigandi bifreiðarinnar yrði sá sami og hafði notið þess að keyra hann hálfa helgina. Sjálfur Viktor Agnar Guðmundsson.

Ég, þessi kærulausi fáviti sem ég nú er hélt ég gæti treyst umræddum manni fyrir bílnum og til þess að borga mér skitinn 40.000kall helgina eftir en allt kom fyrir ekki. Nokkrir mánuðir liðu þar til ég náði almennilegu sambandi við kauða, en þá tóku við afsakanir og aftur afsakanir. Eftir u.þ.b. 18 mánuði var bíllinn enn óborgaður og hafði ekki einu sinni heyrst í nýja "eigandanum" varðandi eigendaskiptapappíra. Þá fór að rigna inn þessum æðislegu bréfum inn á heimilið mitt, og blasti það fyrir augum allra að ég var orðinn stórskuldari hjá tryggingarfélaginu VÍS. Ég yrði að greiða fullt tryggingargjalt fyrir allt árið -----sem ég BTW hafði ekki séð bílinn minn----- auk álagningu og lögmannsinnheimtugjaldi.

Skuldin var þar með komin upp í rúmar 100.000kr. fyrir tryggingu á bíl sem ég átti aðeins í viku. Var mér þá gert að greiða þessa skuld innan ákveðins tíma annars yrði ég sendur í fjárnám. Þar sem ekkert gekk að ná sambandi við umræddan "kaupanda" endaði málið með því að haustið 2007 eyddi ég hálfum mánaðarlaunum mínum, og í rauninni restinni af þeim eftir að ég hafði greitt aðrar óviðkomandi skuldir, í tryggingarskuld sem ég með réttu hefði aldrei átt að taka ábyrgð á. Skuldin gerði ekkert annað á þessum tíma en að hækka, og eins og flestir vita er ekki hlaupið að því að semja við innheimtustofnanir eftir að skuld hefur verið færð frá --í þessu tilfelli-- tryggingarsala til innheimtustofnunar. Þá er það eina eftir í stöðunni bara að borga og brosa. :) Enda gerði ég það og þurfti að lifa blankur út þann mánuð og kom það mér algjörlega í opna skjöldu varðandi önnur gjöld sem ég þurfti að greiða. Álit bankastofnanna á mér fór minnkandi. Hugsið ykkur að spila góða gaurinn í 18 mánuði og treysta einhverjum fyrir að borga í næsta mánuði.....

Í dag stendur hluti af bílnum víst einhversstaðar í Reykjanesbæ, og hefur ekki enn verið rifinn af númerum þar sem þau finnast ekki. Kostnaðurinn sem ég hef þurft að bera eftir þessi ævintýri er kominn yfir 200.000. sem að mínu mati er LANGT yfir því verði sem ég væri nokkurntíma til í að borga MEÐ bíl.

Með þessum pósti hvet ég alla þá spjallverja sem lesa þetta, til að íhuga hvern þeir eiga í viðskiptum við og gera ekki þau mistök að TREYSTA næsta manni, sem jafnvel hefur verið vinur/félagi þinn um nokkurt skeið. Þessi 200.000+kr. skuld er alfarið á mína ábyrgð enda ég skráður fyrir öllu sem tengist bílnum og þar af leiðandi minn fávitaskapur að tilkynna bílnin ekki strax stolinn.

Ég vona að þið getið lesið þetta - þetta er skrifað í mikilli ölvun og reiði yfir þessu atviki þar sem ég er enn að vinna í að koma mínum fjármálum á gott ról.

Allra helst vona ég að umræddur maður, Viktor Agnar Guðmundsson sjái að sér og semji við mig um þetta umrædda mál. Honum er guðvelkomið að tjá sig hér um hans hlið á þessu máli, enda gæti hún verið jafnvel örlítið öðruvísi, en þegar öllu er á botninn hvolft þá er þarna úti maður sem "keypti" (stal) af mér bíl, er ekki enn búinn að borga hann og ekki enn búinn að skrifa undir eigendaskipti, og ég sit uppi með nokkur hundruð þúsunda skuld.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 08:36 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Ekki góð "sprengju- saga"

:shock:

Verður nú fróðlegt að sjá hvernig málum vindur fram.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 08:38 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
P.S. ég get nú ekki annað en hrósað þér fyrir vel skrifaðan texta þrátt fyrir mikla ölvun og langt innlegg :)

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 08:46 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43
Posts: 253
Þetta er ljótt að sjá og það ekki í fyrsta sinn sem maður les svona um þennan "mann".

Fyrir þig vona ég það besta. Viktor talar alltaf um að gera hitt og þetta, kannski er komið að því hjá honum að koma sínum málum á hreint.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 08:56 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43
Posts: 2186
:clap:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 09:14 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Posts: 600
Location: Í aftursæti lögreglubíls
"Skemmtileg" saga en kannski full langdregin.
Það er vonandi að Viktor sjái að sér og greiði þér bílinn og útlagðan kostnað. Hann seigist nú vera orðinn betri maður í dag.

_________________
Tommi camaro fanclub member no. 03


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 10:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08
Posts: 3377
:clap:

_________________
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 10:16 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
Þetta hlýtur að vera kærumál :!:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 11:22 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. Sep 2005 17:22
Posts: 802
Dem it, þetta er bara vont ! :S

tek undir með sæma, vel og skiljanlega skrifað

Viktor,,,, vont dæmi eitthvað. væri gaman að sjá svör

_________________
BMW e60 520d - 2006
Honda Shadow Spirit - 2012


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 11:41 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Mon 25. Jun 2007 09:37
Posts: 137
Ég ætla rétt að vona að þessi gæji sjái af sér og borgi þér tilbaka.. karma is a bitch ;)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 12:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
shadow wrote:
Ég ætla rétt að vona að þessi gæji sjái af sér og borgi þér tilbaka.. karma is a bitch ;)

Þú gerir þér ekki grein fyrir hersu oft ég hef sagt þetta við hann :?

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 13:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
:roll:

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 13:19 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
Já. Þetta er næstum það sama og ég lenti í með PO-700. Sat uppi með gjöld af honum í x mánuði eftir að hann fékk bílinn en hann gerði upp við mig og gott betur fyrir vikið.

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Last edited by Danni on Sun 30. Mar 2008 23:50, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 13:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
Anger nokkur hérna á spjallin var nú ekki mikið skárri gagnvart félaga mínum sem keyfti 730 bíl af honum. Hann borgaði fyrir hann fékk lyklana og var svo á honum og bíllinn tekinn af honum því bíllinn skráður á annan aðilla og ótryggður. Og kauði búinn að skifta um númer. Og ekkert hægt að ná í hann.

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 29. Mar 2008 13:32 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Fri 31. Dec 2004 00:51
Posts: 292
Hannsi wrote:
Anger nokkur hérna á spjallin var nú ekki mikið skárri gagnvart félaga mínum sem keyfti 730 bíl af honum. Hann borgaði fyrir hann fékk lyklana og var svo á honum og bíllinn tekinn af honum því bíllinn skráður á annan aðilla og ótryggður. Og kauði búinn að skifta um númer. Og ekkert hægt að ná í hann.


hann er ekkert buinn að skipta um numer hann er bara upptekinn eg skal segja honum að hringja

_________________
M.Benz 560se :seldur:


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 120 posts ]  Go to page 1, 2, 3, 4, 5 ... 8  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 16 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group