hef bara prufað V8 bílinn og fannst hann mjög skemmtilegur. alveg nóg afl fyrir mig. en ég hef enga reynslu af línu 6 vélinni. erum við að tala um alveg fáránlegan mun á bílunum eða?
megið endilega koma með ykkar reynslu af þessum bílum


Lindemann wrote:ég er búinn að eiga 530i með m30 mótornum og hef keyrt 730 með m60.
M30 er gamall mótor, eldgömul hönnun - einfaldur og þrælsterkur. Ég myndi ekki fá mér svona mótor aftur nema þá í 3,5L útfærslunni til þess eins að blása inná hann.
M60 er töluvert mikið nútímalegri, endast oftast 300þús km með góðu móti, hrikalega þýður gangur í þeim. 3,0L bíllinn hefur ekkert rosalegt afl, en er samt mörgum skrefum á undan gömlu 6cyl sleggjunni,,,,,skilar þessum flykkjum alveg ótrúlega vel áfram, ég gæti vel hugsað mér e32 bíl með m60, hvort sem er 3.L eða 4.L
Mín niðurstaða -> ég mun alltaf taka m60 framyfir m30 í framtíðinni, þó svo að ég hafi ekkert nema góða reynslu af m30.
Bílar á þessum aldri (M30) bílar eiga það til að vera með tæpar skiptingar og það er bara vesen, en þó ekki óleysanlegt

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests