fara með E65 í þvottastöð N1

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

fara með E65 í þvottastöð N1

Postby bjornf » Wed 19. Mar 2008 08:53

já þetta fannst mér mjög grátlegt, ég var staddur í þjónusturými N1 í grafarvogi, og er að þurka restina af bóninu af bílnum mínum,
þá tek ég eftir að næsti bíll inní þvottastöðina er BMW 745Li E65 Steingrár,
ég gékk að eigandanum spurði hann ætlaru virkilega að setja þennann glæsivagn þarna inn? veistu hver áhrifin verða, hann sagði eru það ekki bara kústarnir útá plani sem gera littlu rispurnar, ég sagði nei, svo spyr ég átt þú bílinn? svarið var nei bróðir minn, svo sagði ég honum að ég ætti auðvitað ekkert að skipta mér að, bara ég væri mikill bmw maður og mér finndist þetta sorglegt :?
Björn Friðriksson
bjornf
Kassabílstjóri
 
Posts: 147
Joined: Tue 10. Oct 2006 00:57
Location: Reykjavík

Postby srr » Wed 19. Mar 2008 11:24

Hefði einmitt haldið að eigendur svona bíla færu annað hvort með þá á bón og þvottastöðvar til að láta sjæna þá fyrir sig....
...eða nostruðu við þá sjálfir.

Svona er fólk misjafnt :shock:
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Postby íbbi_ » Wed 19. Mar 2008 11:26

ég fer alltaf með bílana mína í snertilausa þvottastöð hjá löðri.. hefu reynst vel, fór svo með 350z í snertilausa hjá N1, og hún var hreinlega ekki snertilaus og fláði skinnið af 350z :evil:
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby FinnurKarls » Thu 20. Mar 2008 15:24

true mér finnst að það mætti aðeins auka þekkinguna hjá fólki hérna á íslandi, annar hver maður sem kústar bílinn sinn og þegar maður kaupir notaðann bíl þá geturðu alveg bókað að það er búið að kústa hann nokkrum sinnum :cry: pabbi kústaði e90 hennar mömmu um daginn og hann er rauður án alls metallic og það var ekki sjón að sjá bílinn, bónaði hann fyrir hann stuttu seinna og rispurnar voru ekkert grín sko, þetta vatnslakk er ekki að meika það nú til dags :roll: btw. pabbi fékk að heyra það :D
E30 325 '89 M-Tech 2--- VR-718,, í vetrardvala:)
FinnurKarls
Kassabílstjóri
 
Posts: 217
Joined: Sun 03. Feb 2008 22:04
Location: Árbær

Postby Benzari » Thu 20. Mar 2008 15:38

Þessi þvottakerfi á snertilausu stöðvunum gera lítið meira en að skola rykið af bílnum, þarf að sprauta tjöruhreinsi á bílinn og leyfa honum að "vinna" í 2-3 mínútur ef farartækið er með saltdrulluna uppá glugga. :twisted:
Annars eru þessar stöðvar fínar ef fólk hefur ekki aðstöðu, kunnáttu eða nennir ekki að þrífa bílinn sinn.
Last edited by Benzari on Thu 03. Apr 2008 00:46, edited 2 times in total.
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby GummiH » Thu 20. Mar 2008 16:45

Ég og Angelic0- sáum líka einhvern plebba á 545i að kústa hann á þvottaplani í keflavík... bara grátlegt !
GummiH
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 29
Joined: Sun 08. Oct 2006 17:25
Location: Keflavík

Postby Xavant » Thu 20. Mar 2008 16:51

Maður er alltaf að sjá þetta útum allt. frekar óþolandi stundum
Kv.Gissur

Dótakassinn
E39 '96 540i - SS200
Honda CBR600 F4i '06

Seldir
E39 '97 528i
E39 '98 540i
E36 '95 325i
E28 '81 520i
E34 '93 525i
E46 '02 325i
User avatar
Xavant
Getawaybílstjóri
 
Posts: 902
Joined: Thu 20. Apr 2006 18:52
Location: cruizin on 540 8)

Postby Hlynzi » Thu 20. Mar 2008 18:52

Já, best er að sjá fólk sem er nýbúið að kaupa svarta bíla með vatnslakki, nýja að kústa þá ofaní tjöruhreinsinn.


Ég fer aldrei með bíla í þvottastöðvar, það einfaldlega bæði rispar þá, eða þvær þá ekkert almennilega (hef reyndar ekki prófað þessa snertilausu)

Þægilegast samt að tjöruhreinsa á löðri og spúla með háþrýstidælunni og svampa svo.
Fer oft að svampa bílinn á bensínstöðvum, og nota kústinn bara til að spúla af bílnum, og læt það nú eftir mér að kústa rúðurnar því þær þola eitthvað.
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla
Hlynzi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 586
Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Location: Grafarvogur

Postby Vargur » Thu 20. Mar 2008 20:13

Ég hef vanaleg farið með mína bíla á þvottastöðvarnar og ekkert fundið að þær rispi bílinn. Einn veturinn var ég með Landcruiser sem þurfti að sprauta húdd og framenda á vegna tjóns, allan veturinn þvoði ég bílinn reglulega á þvottastöð og varð ekki var við að lakkið færi illa á því. Á sumrin þvæ ég með kústi en ekki ef kústarnir eru fullir af drullu.
Ég get ekki séð að lakkið á bílunum mínum hafi farið illa á þessum þrifum og sé eiginlega ekki munin á því og að nudda sandinum inn í lakkið með svampi.
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby fart » Thu 20. Mar 2008 20:34

Menn þrífa almennt ekki bílana sína þar sem ég bý heldur keyra þeim í gegnum svona kústastöð, meira að segja sumar bónstöðvarnar gera það :x

Ég er reyndar ekki alsveg sannfærður um að það séu kústarnir sem eru að skemma, heldur það að bílarnir eru haugskítugir og kústarnir settir á það, sama gæti gerst við að svampa eða tuska mjög skítugan bíl án þess að nota nóg vatn og sápu.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby ValliFudd » Thu 20. Mar 2008 20:40

Svo er náttúrulega til fólk eins og einn félagi sem ég heyrði sögu af..

Kokkur var að bera inn mat í hús þar sem átti að vera veisla.. Hann ætlaði að skella kössunum á gólfið í bílskúrnum en þá kallaði eigandi hússins til hans. "Skelltu þessu bara ofan á bílinn, ég læt bara sprauta hann ef hann rispast" :lol:

Það var by the way brand spanking nýr 750 e38 8)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby bjahja » Thu 20. Mar 2008 20:41

reyndar þá skemma svona almenningskústar MEGA mikið af því fólk einmitt setur þá beint í drullu eða leggur þá jafnvel á jörðina=fullt af sandi og viðbjóði í þeim.
En ég hef alveg lesið að gæða kústar fari ekki verr með lakkið en svampur.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Einarsss » Thu 20. Mar 2008 21:00

bara nota meguiars hanskann á þetta og skella honum í þvottavél eftir 2-3 þvotta.

En ég missi altaf andlitið þegar ég sé fólk með splunkunýja bíla á þvottaplaninu hjá t.d shell.. bara slæmt.

Annars er fínt að fara á löður og djúsa bílinn í tjöruhreinsi og skola svo með háþrýstidælunni og keyra heim og þvo svo almennilega
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby kelirina » Thu 20. Mar 2008 22:55

Vargur wrote:Ég hef vanaleg farið með mína bíla á þvottastöðvarnar og ekkert fundið að þær rispi bílinn. Einn veturinn var ég með Landcruiser sem þurfti að sprauta húdd og framenda á vegna tjóns, allan veturinn þvoði ég bílinn reglulega á þvottastöð og varð ekki var við að lakkið færi illa á því. Á sumrin þvæ ég með kústi en ekki ef kústarnir eru fullir af drullu.
Ég get ekki séð að lakkið á bílunum mínum hafi farið illa á þessum þrifum og sé eiginlega ekki munin á því og að nudda sandinum inn í lakkið með svampi.


Þarna hittir þú naglann á höfuðið. Svampurinn getur einmitt valdið eins miklu skaða og kústurinn. Flatur flötur svampsins á það einmitt til að festa óhreinindin á milli og svo er svampurinn dreginn eftir lakkinu og óhreinindin mynda þar af leiðandi örrispur svipað og kústurinn getur gert. Það er hins vegar spurning um hvernig verknaðurinn er framinn, þ.e.a.s. hvort svampurinn er hreinsaður vel á milli fleta, hvort óhreinindin og tjaran eru þvegin af bílnum fyrir lokaþvott þar sem svampurinn er loks borinn á lakkflötinn. Einnig ber að varast hvernig bíllinn er þurrkaður eftir þvott. Er handklæðið/vaskaskinnið öruggt um að mynda engar örrispur/"marring"? Góð leið til að sjá hvort það sé þvotturinn eða þurrkurinn er að þvo langsum en þurrka þversum. Þá má sjá hvort verkferlið er að framkvæma örrispurnar. Einnig er gott fyrir ykkur að venja ykkur á tveggja fötu þvott þar sem í einni fötunni er sápuvatnið og í hinni er skolvatnið. Endilega skoðið þetta myndband sem sýnir mjög vel aðferðina skoða

Eitt gott ráð handa ykkur kraftsmönnum. Þegar þið eruð búnir að þvo alla sápuna af bílnum með háþrýsisprautunni eða vatnsbyssunni þá skulu þið skola aftur bílinn eingöngu með vatnsslöngunni (taka festingarnar af) eða vatnskönnu. Við þetta þá rennur vatnið betur af flötunum og mikklu minna vatn er til staðar sem þarf að þurrka.
User avatar
kelirina
Kassabílstjóri
 
Posts: 185
Joined: Mon 13. Nov 2006 09:18

Postby Lindemann » Thu 20. Mar 2008 23:03

eitt sem ég var að pæla í.................eru menn ennþá að nota rándýran og gagnslausan tjöruhreinsi í lítratali á bílana sína???

ég er farinn að nota olíuhreinsir eingöngu...hann kostar ekki nema rúmlega 1/3 af því sem tjöruhreinsir kostar og virkar miklu betur.
Hann er náttúrulega það sterkur að það verður að fara varlega með hann og alls ekki leyfa honum að standa lengi á lakkinu, en ég hef ekki orðið var við að hann eyðileggi lakkið, maður verður náttúrulega alltaf að bóna eftir að hafa notað hann.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 39 guests