Eitthvað hefur maður heyrt um það að vökvaundirlyfturnar sem drifnar eru af smurolíukerfinu í þessum Subaru bílum séu leiðinlegar og ef að þær bila og verða óþéttar missir þú smurþrýsting á vélinni sem leiðir af sér fleiri bilanir. Annars hef ég ekki hundsvit á Subaru en heyrði þetta frá félaga mínum sem hefur átt nokkra.