Zyklus wrote:Það voru einhverjar vangaveltur um það hvenær krónan færi yfir 150 hér fyrr á þræðinum, það kæmi mér ekki á óvart að þetta yrði sá dagur sem það myndi gerast.
Miðað við það sem er búið að ganga á núna í kvöld og í nótt á fjármálamörkuðum (hálfgerð panic) þá held ég að það sé ekki óraunsætt að búast við talsverðu falli núna í dag þegar markaðir opna hér.
Yen og aðrar lágvaxtamyntir munu líklega hækka hressilega gagnvart ISK.
Það er ansi mikil svartsýni í gangi núna, ekki bara hér á landi, heldur alls staðar.
bebecar wrote:Hve algengt er að fólk hafi fengið lánað til að kaupa hlutabréf? Sú taktík minnir orðið á 1929 krassið.
Zyklus wrote:bebecar wrote:Hve algengt er að fólk hafi fengið lánað til að kaupa hlutabréf? Sú taktík minnir orðið á 1929 krassið.
Það hafa einmitt sumir verið að benda á að þetta sem sé að gerast núna á fjármálamörkuðum sé svipað og undanfari kreppunnar ´29 nema í nokkurs konar „slow motion“, þ.e.a.s. seðlabanki BNA og fleiri eru að reyna eins og þeir geta að halda lofti í blöðrunni, það er bara spurning hversu lengi þeir geti haldið henni uppblásinni áður en allt keyrir um koll.
Ef þetta er rétt sýn er ballið bara rétt að byrja og þetta mun hafa skelfilegar afleiðingar fyrir allan heiminn.
Þannig að við skulum rétt vona að svartsýnustu spár rætist ekki, en því miður þá virðast líkurnar á því minnka með degi hverjum.
Dollarinn er í frjálsu falli, gull komið í methæðir, olía líka.
Þetta er svakalegt.
Ps. ISK komin í 150,2.
EUR/ISK 116,76 (miðgengi)
fart wrote:Með þessu áframhaldi verður bensínlíterinn kominn í 200kr á íslandi áður en maður tankar upp næst
Users browsing this forum: No registered users and 21 guests