Visir.is wrote:Fréttablaðið, Mið. 8. okt. 07:18
Var að ryksuga bensíntank
Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík kom eldurinn í bílaverkstæðinu á Viðarhöfða á mánudagskvöld upp þegar starfsmaður verkstæðisins notaði ryksugu til að tæma óhreinindi úr bensíntanki bíls.
Lögregla segir að svo heppilega hafi viljað til að starfsmaðurinn hafi einmitt brugðið sér frá bílnum til að ná í verkfæri þegar ryksugan, sem var í gangi, hafi sprungið og eldur læst sig á svipstundu um verkstæðið. Augljóslega væri um óhapp að ræða.
Starfsmaðurinn, sem lenti í þessum hremmingum, er sonur annars eiganda verkstæðisins. Honum tókst að komast út ómeiddur.
Faðir hans, Hafliði Guðjónsson, segir verkstæðið og allt sem í því var einfaldlega vera ónýtt, meðal annars þrír bílar sem voru innan dyra. Tryggingarfélagið hafi þó þegar sagst munu endurbyggja verkstæðið á sama stað. Tíminn leiði í ljós hvort starfseminni getiðhaldið áfram annars staðar á meðan á uppbyggingunni stendur. "Það komst neisti í þetta og svo kom bara stór blossi. Það var honum til happs að hann hafði rétt brugðið sér frá," segir Hafliði.

