Varðandi kastara í e46

Hér skal spjalla um BMW.

Varðandi kastara í e46

Postby Hreiðar » Tue 11. Mar 2008 15:08

Ég á e46 sem er ekki með kastara, staðinn fyrir þá eru einhverjir svartir tappar, en ég er að spá í að láta M kit á hann í sumar með kastara, svo byrja ég aðhugsa, er það hægt?:) það vantar kastara takkann er það ekki? :oops: eða er hægt að tengja hann við þokuljósatakkann eða jam :roll: hehe enginn skítaköst takk :lol:
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Postby Höfuðpaurinn » Tue 11. Mar 2008 15:53

það er að sjálfssögðu flest hægt ef viljinn er fyrir hendi.

getur tengt inn á þokuljósatakkann, en er ekki viss um að það gangi í gegnum skoðun, þarft bara að finna út úr því sjálfur.

svo geturu að sjálfsögðu bara sett sjálfur takka, það er ekki flókið.

en snyrtilegasta leiðin er að sjálfssögðu að fá ljósa panel úr öðrum bíl (eða nýjan) sem er með takka fyrir þokuljós að framan og tengja þetta í hann.

verður bara að muna að setja relay fyrir ljósin og tengja þetta þannig að það verði að vera kveikt á stöðuljósunum til að það kvikni á þessu.

þetta er ekki mikið mál og um að gera að skella þessu bara í framkvæmd.
E36 325ia 1993 (seldur)
E34 520i 1992 (seldur)
og eitthvað af öðru dóti
Höfuðpaurinn
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 356
Joined: Tue 11. Jan 2005 11:01

Postby Hreiðar » Tue 11. Mar 2008 15:58

Heyrðu okay, ég skal muna þetta ;) takk kærlega
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Postby kjartanbj » Tue 11. Mar 2008 17:56

svo er nátturulega spurningin.. tilhvers kastarar? ég nota þessi apparöt ALDREI.. veit um fátt meira pirrandi að mæta einhverjum álfum í umferðinni með kastarana kveikta, óþolandi vitleysingar sem halda að þetta sé eitthvað töff. enda blikka ég þannig vitleysinga hiklaust á fullu , bæði þegar ég er á einkabílnum og á rútum , enda er þetta jafngildi því að keyra um með háuljósin eins og einhver herforingi
kjartanbj
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 64
Joined: Sun 25. Jun 2006 18:08

Postby Brútus » Tue 11. Mar 2008 19:07

User avatar
Brútus
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Sat 25. Aug 2007 02:56

Postby Hreiðar » Tue 11. Mar 2008 20:33

Er ekkert að fara að hafa kastara til að hafa þá kveikta á fullu, kastarar láta bara bílinn lúkka endalaust meira, og það vita það allir ;) Miklu flottara að hafa M stuðara með kastara heldur en venjulegan með einhver svört lok, vill bara gera bílinn minn flottari og gera hann sölulegan þegar ég sel hann einhverntíma, mjög gott eintak, keyrður lítið og aðeins einn eigandi, sem voru gömul hjón sem hugsuðu vel um hann, sími, forhitari og læti í honum, þannig það skemmir ekki að gera hann svoldið fallegan :)
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Postby kjartanbj » Tue 11. Mar 2008 20:41

sleppir þá bara að tengja þá? ... held hinsvegar að það yrði þá sett út á það í skoðun..
kjartanbj
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 64
Joined: Sun 25. Jun 2006 18:08

Postby Hreiðar » Tue 11. Mar 2008 20:46

Til hvers að sleppa að tengja þá? :'D afhverju ekki bara að hafa þetta allt rétt og allt vel stillt en kveikja á þessu þegar ég þarf þess, hafa þetta smá alvöru, fáranlegt að selja bílinn svo bara "já heyrðu, kastararnir, þeir eru ekki tengdir því fólk finnst það svo pirrandi þegar einhver hefur þetta kveikt hérna í bænum" :roll:
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Postby kjartanbj » Tue 11. Mar 2008 21:02

var nú eiginlega bara grínast með að tengja þá ekki, svaka sjaldgæft að þurfa kveikja á þeim samt.. sjaldan sem maður lendir í þoku hérna :P og þá heldur fólk að það megi bara kveikja á þeim og hafa þá kveikta.. eeeen það er stór miskilningur, manni ber að slökkva á þeim þegar maður mætir bíl alveg eins og háu ljósunum
kjartanbj
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 64
Joined: Sun 25. Jun 2006 18:08

Postby Hreiðar » Tue 11. Mar 2008 21:07

jújú ég veit ég veit :D en alltaf gaman að láta allt í bílnum virka ;)
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Postby Berteh » Wed 12. Mar 2008 09:30

Það er ekki ódýrt grín að hafa þetta tengt oem því það þarf að fjárfesta í nýju LCM þar sem gamla þitt er ekki með tvískipta takkanum fyrir neðan snúningsrofan :) nýtt LCM kostar alveg arm og fótlegg og ekki er ráðlegt að fá notað því kílómetrastaðan er skráð á LCM'ið og myndi þá birtast milagetamper dot
User avatar
Berteh
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 307
Joined: Sat 09. Dec 2006 22:29
Location: Reykjavík

Postby Einsii » Wed 12. Mar 2008 09:39

kjartanbj wrote:svo er nátturulega spurningin.. tilhvers kastarar? ég nota þessi apparöt ALDREI.. veit um fátt meira pirrandi að mæta einhverjum álfum í umferðinni með kastarana kveikta, óþolandi vitleysingar sem halda að þetta sé eitthvað töff. enda blikka ég þannig vitleysinga hiklaust á fullu , bæði þegar ég er á einkabílnum og á rútum , enda er þetta jafngildi því að keyra um með háuljósin eins og einhver herforingi

Ég þarf nú á hverjum deigi að keira utanbæjar til og frá vinnu, í allavega veðrum. Og þá finnst mér muna öllu að hafa almenilega lýsingu framan á bílnum. Og þá koma þokuljósin mjög sterk inn.
Annars er ég nú fyrir þónokkru síðan vaxinn uppúr því að keira um allt með þokuljósin kveikt einsog þótti kúl þegar maður var 17-18 ára.
Finnst það reyndar soltið asnalegt í dag...
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby kjartanbj » Wed 12. Mar 2008 11:15

Einsi. ekkert að því að nota þessi ljós. en þá slekkur maður þau þegar maður mætir bílum.. aðaljós + þokuljós blinda , þó að þokuljós geri það kannski ekki ein og sér þá er þetta orðið óþægilega mikið ljósmagn
kjartanbj
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 64
Joined: Sun 25. Jun 2006 18:08

Postby thisman » Wed 12. Mar 2008 13:08

Ha - er fólk að slökkva á þokuljósunum sínum þegar það mætir öðrum bílum í þoku eða snjóbyl? Er ekki eini tilgangurinn með græjunni að gera bílinn sýnilegri í slæmu veðri? Ég er einmitt með E46 með þokuljósum að framan og ég hef aldrei getað nýtt þau til að sjá eitthvað meira fram á veginn. Einu skiptin sem ég kveiki á þeim ef ég lendi í ofangreindum aðstæðum og vill tryggja að þeir bílar sem ég mæti sjái mig almennilega.

Þess utan þá er takkinn að mig minnir (sýnir hversu oft ég nota hann að ég man það nú ekki 100%) staðsettur þannig að það væri glórulaust að fara að fikta í honum rétt í þann mund sem maður mætir öðrum bílum og ætti að vera með báðar hendur á stýri.

Ég vil taka fram að ég er að tala um OEM þokuljós, ekki fjallabílaljós eins og sett eru framan á jeppa sem eru í allt öðrum flokki og notuð til að lýsa lengst fram fyrir bílinn.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Postby Frikki » Thu 13. Mar 2008 01:01

Settu bara xenon kerfi í bílinn og hættu að rugla með þessa kastara :D

Algjörlega useless ef þú ert með xenon.
Frikki
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 282
Joined: Mon 30. Jan 2006 22:34

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 10 guests