Ársfundur,,

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby Alpina » Tue 11. Mar 2008 07:40

Já,, eitt enn

Þar sem sumir taka þessu sem árás á sig vil ég að fram komi .. að þar sem þráðurinn innihélt í upphafi ,, tilvitnun ,,um að hvort breyta ætti fyrirkomulaginu á stjórnarsetu í kraftinum,, ekki hvort að núverandi stjórn ætti að víkja,,
það er er ekkert að innihaldi þeirra aðila er stofnuðu klúbbinn,, þvert á móti,, enda var þetta drengsjónarmið að ýta úr vör slíkri hugmynd og láta verða að veruleika ,, þá þörf og hugmynd að sameina fólk til viðræðu og skrafs um þau málefni er tengjast BMW..
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby bebecar » Tue 11. Mar 2008 08:10

Áður en þetta verður fært þá langar mig að leggja fáein orð í belg.

Að mínu mati varðar málið fleiri en meðlimi þar sem hér er fjöldi fólks sem væri til í því að koma að starfinu ef núverandi fyrirkomulags nyti ekki við.

Ég held að það sé bara komið á daginn sem hefði átt að gera í upphafi og það er að stofna formlegann BMW klúbb þar sem kosið er í stjórn eins og hjá Stjörnunni, nú eða eins og hjá BMW mótorhjólaklúbbnum en þar er ég t.d. skráður félagi og hef mætt á stjórnarfundi (þegar ég hef verið á landinu).

Ég myndi gera slíkt hið sama hér ef ég hefði kost á því.

Formlegur klúbbur hefur ýmsar skyldur og tækifæri til að gera mun betur. Öll þau fríðindi sem hafa verið í boði hér, auk ferða erlendis, merki fyrir klúbbfélaga, stöðu innan alþjóðasamtaka BMW-klúbba og áhrif þar.

Ég held að þetta sé það sem Sveinbjörn myndi vilji sjá gerast og mér sýnist Sæmi vera það veikur fyrir lýðræðishliðinni að hann gæti kannski hugsað sér það líka.

Ég tel það hreinlega vera tímaspursmál hvenær formlegur klúbbur verður stofnaður og þá myndi þessi félagsskapur, eins góður og hann er, annaðhvort sameinast nýja klúbbnum eða fara í beina samkeppni með tilheyrandi ríg.

Ef menn vildu hinsvegar feta þessa leiðina er óleyst hvernig menn ætla að launa þeim sem eiga bmwkraft og hafa kostað til vinnu, verðmætum og fleiru til þess að halda þessu gangandi - en það hlýtur að vera hægt að finna út úr því og er stjórnin líklega fullfær um það (þetta eru þeirra peningar hvort eð er eða hvað?)

Kjarninn í gagnrýninni hefur þannig ekkert með fólkið að gera heldur með formið að gera. Hér hafa stjórnendur staðið sig mjög vel og það í langan tíma (með einstaka hikstum eins og eðlilegt er). En á meðan formið er svona þá verður þetta aldrei fullgildur BMW klúbbur og ekki heldur þó fyrirkomulaginu verði breytt í þá átt sem Sveinn nefnir.

http://www.bmwhjol.is/

Væri svona nokkuð ekki eitthvað sem þið vilduð hafa fyrir bílana ykkar? Og þetta er klúbbur fyrir BMW farartæki sem B&L virðist ekki einu sinni ætla að flytja inn (í bili).
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby gstuning » Tue 11. Mar 2008 11:21

Hver er gróðinn af því að vera með formlegann klúbb?
man að það var skoðað og álitið að ekki væri þess virði að standa í því þá.

Það er bara þannig að þegar er verið að skipta fólki út í kosningum
þá er menn að fara inn sem hafa áhuga og komast svo að því að þeir eru í miklu starfi fyrir akkúrat ekki neitt, og þá meina ég ekki peninga að annað verðmæti heldur eru þeir einir á báti, sjáið þetta með kk aftur og aftur.
margur hefur þar unnið þvílíkt starf á meðan aðrir sitja á rassgatinu í stjórn að gera ekki neitt. Þannig á þetta ekki að verða, þess vegna er fínt finnst mér eins og þetta er. Mér þykir ekki nógu sniðugt að ætla upphefja þennann klúbb í eitthvað svaka starf,
og ef það er málið að bara skipta fólki út af af því bara þá sé ég ekkert að, því að það væri frekar hægt að setja fólk í nefndir í hin og þessi störf. Eins og skemmtinefnd t.d
því það er í raun eina þannig séð andlit kraftsins útá við,
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby arnib » Tue 11. Mar 2008 11:23

saemi wrote:Ég er ekki sammála því að Sveinbjörn hafi neitt til málana að leggja.


Enda er það ekki það sem ég meinti að hann hefði aldrei neitt til málanna að leggja. Vissulega er gott að starta þessari umræðu því menn hafa mismunandi skoðanir á þessu.

Það sem ég var aðallega að vísa í var þetta ómálefnalega svar hérna við póstinum mínum.

Alpina wrote:Nei sko .. arnib á ögurstundu
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby bebecar » Tue 11. Mar 2008 16:04

gstuning wrote:Hver er gróðinn af því að vera með formlegann klúbb?
man að það var skoðað og álitið að ekki væri þess virði að standa í því þá.

Það er bara þannig að þegar er verið að skipta fólki út í kosningum
þá er menn að fara inn sem hafa áhuga og komast svo að því að þeir eru í miklu starfi fyrir akkúrat ekki neitt, og þá meina ég ekki peninga að annað verðmæti heldur eru þeir einir á báti, sjáið þetta með kk aftur og aftur.
margur hefur þar unnið þvílíkt starf á meðan aðrir sitja á rassgatinu í stjórn að gera ekki neitt. Þannig á þetta ekki að verða, þess vegna er fínt finnst mér eins og þetta er. Mér þykir ekki nógu sniðugt að ætla upphefja þennann klúbb í eitthvað svaka starf,
og ef það er málið að bara skipta fólki út af af því bara þá sé ég ekkert að, því að það væri frekar hægt að setja fólk í nefndir í hin og þessi störf. Eins og skemmtinefnd t.d
því það er í raun eina þannig séð andlit kraftsins útá við,


Gróðinn af því er sá að hverjir sem vilja geta haft áhrif á starfið, borið ábyrgð en að sama skapi þurft að standa skil á því sem þeir gera og standa fyrir gagnvart félögunum. Því er ekki að heilsa þegar klúbbur er í einkaeigu.

Stjórnir eru auk þess mismunandi virkar hvort sem menn eru kosnir þar eða ekki.

Það eru fleiri atriði sem mér finnst skipta máli. T.d. það að vera formlegur klúbbur með ákveðin réttindi og skyldur, samstarf við erlenda BMW klúbba, ferðir erlendis, tilboð sem koma frá BMW til formlegu klúbbanna - að ógleymdri samstöðunni sem fylgir því að allir séu jafnir eða hafi í það minnsta jöfn tækifæri til að vinna að velferð áhugamálsins.

Skoðaðu bara síðuna hjá mótorhjólaklúbbnum, það er fullt að gerast í klúbbnum þó hann sé ekki stór.

Annars finnst mér bara að menn ættu að stíga skrefið sjálfir áður en einhver annar gerir það fyrir þá. Það eru það margir BMW-ar hér á landinu og það virkir eigendur að það er að mínu mati bara tímaspursmál hvenær formlegur klúbbur verður stofnaður og það yrði leiðinlegt, eiginlega hin mesta synd, ef það yrði gert til hliðar við þennan hér.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby gunnar » Tue 11. Mar 2008 16:32

Ég ætla ekki að skrifan neina ritgerð, en ég verð nú samt sem áður að fá að hrósa stjórninni hér fyrir vel unnin störf hingað til! Ég þarf nú ekki annað en að fara yfir á kvartmiluspjallið (sorry Valli) til að sjá hvernig hlutirnir eru þar. Engin samstaða með mönnum finnst MÉR og allir að tuða yfir hvað stjórnin er ömurlegt og allt er skelfilegt.

Og ég er ekki að segja þessi þráður sé í einhverjum lastar-ham gagnvart stjórninni heldur langaði mig bara að klappa þeim á bakið fyrir vel unnin störf.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Tue 11. Mar 2008 18:02

Mér finnst stjórnin hafa staðið sig vel hér - ég er hinsvegar ekkert viss um að þeir komi til með að standa sig vel við akkúrat þetta djobb til æviloka :lol: Sama stjórn mætti t.d. gjarnan starfa áfram ef krafturinn yrði gerður að formlegum klúbb - hún yrði bara að vera kosin til starfa og hún myndi jafnframt vinna öðruvísi að málum undir þeim kringumstæðum (og kannski að öðrum málum = mismunandi fólk, mismunandi áherslur).

Fyrir mína parta þá finnst mér aðalatriðið vera það að taka þennan klúbb skrefi lengra, sem mér fannst líka á sínum tíma þegar núverandi form var ákveðið sem mér þótti mjög miður.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Angelic0- » Thu 13. Mar 2008 14:12

Alpina wrote:
///M wrote:TEAM WANNA??????

Þú ert alltaf jafn langorður


Ef að orðaforðinn er í stíl við þroskann þá skil ég alveg hversu fáorður hann er!

Mér finnst persónulega að hlutirnir hér gangi vel. En ég væri alveg til í að sjá nýtt blóð í stjórn!

Ég væri til í að sjá hverjir skipa hvaða stöðu hérna?

Svo finnst mér ekkert að því að þetta sé á opnu spjalli, færa þetta bara í almennt spjall.

Sveinbjörn byrjaði hér mjög málefnalega umræðu og tók síðan skýrt fram að hann treysti
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Angelic0- » Thu 13. Mar 2008 14:20

Vei, fann galla á 3G!

Var búinn að skrifa rosa ritgerð og svo sendist ekki allt inn!

En til að klára;
...sér ekki til að taka að sér stjórnunarstörf!

En ég er ekki borgandi meðlimur í ár (ennþá, pm með reikningsnr. óskast) svo að þetta snertir mig ekkert :roll:
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby UnnarÓ » Thu 13. Mar 2008 14:24

Angelic0- wrote:En ég er ekki borgandi meðlimur í ár (ennþá, pm með reikningsnr. óskast) svo að þetta snertir mig ekkert :roll:

PM óskast? http://www.bmwkraftur.is/skraning/ :roll:
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Postby Hannsi » Thu 13. Mar 2008 15:04

UnnarÓ wrote:
Angelic0- wrote:En ég er ekki borgandi meðlimur í ár (ennþá, pm með reikningsnr. óskast) svo að þetta snertir mig ekkert :roll:

PM óskast? http://www.bmwkraftur.is/skraning/ :roll:[/quote
Var búinn að benda honum á þetta ;)

Greynilega með svaka gúbbi fiska minni :lol:
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby Angelic0- » Thu 13. Mar 2008 15:46

Var búinn að gleyma að þetta væri þarna!
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Thrullerinn » Thu 13. Mar 2008 16:35

Skráði mig í Stjörnuna fyrir nokkrum vikum útaf benzanum.
Helvíti flott aðalfundarboð, fundarsalur og alles :)

Hinsvegar er fjör á kraftinum og umræðurnar lifandi, gott fólk að stjórna
og grípa inn í þegar þess er þörf. Er hægt að gera kröfur um meira?

(Alpina má nú alveg tjilla á póstinu þó að leynist margir gullmolar inn á milli.)

Sáttur
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby íbbi_ » Thu 13. Mar 2008 18:07

ég er nú einn af langlífari spjöllurunum hérna held ég, ég var með annan acount á undan þessum, mér finnst inlegg alpina eiga fullann rétt á sér, þetta eru bara spurningar sem eðlilegt er að sé spurt,

mér finnst hinsvegar líka að réttur stofnenda og i.m.o eigenda klúbbsins sé ótvíræður, þ.e.a.s til seturéttar í stjórn,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Angelic0- » Thu 13. Mar 2008 18:12

íbbi_ wrote:ég er nú einn af langlífari spjöllurunum hérna held ég, ég var með annan acount á undan þessum, mér finnst inlegg alpina eiga fullann rétt á sér, þetta eru bara spurningar sem eðlilegt er að sé spurt,

mér finnst hinsvegar líka að réttur stofnenda og i.m.o eigenda klúbbsins sé ótvíræður, þ.e.a.s til seturéttar í stjórn,


Þarna hittiru naglann á höfuðið, hinsvegar er alveg cruicial að koma nýjum hugmyndum og sjónarsviðum að....

Ég er ekki að segja að það eigi að víkja öllum stjórnarmönnum frá, þvert á móti... mér finnst núverandi stjórn vera að gera mjög góða hluti, krafturinn er alltaf að verða líflegri og líflegri og mér finnst þetta alltaf að verða skemmtilegra og skemmtilegra samfélag :!:
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 30 guests