Frændi minn var að fá sér Bmw sem er með vandamál með læsingar.
Þannig er mál með vexti að lykillinn virkar ekki á skrárnar.
*Er best fyrir hann að kaupa nýjar læsingar eða er hægt að taka lásana/skrárnár af hurðunum og hreinsa þær eða laga á einhvern hátt ?
*Er kannski málið að fá sér nýjan lykil ? Er það dýrt ?
Þetta lýsir sér þannig að hann getur sett lykilinn í en þau naumlega því að hann skrikar í. Þegar hann er kominn með lykilinn á kaf þá getur hann ekki snúið. Þetta byrjaði víst sem vandamál í frosti hjá fyrri eiganda en núna er þetta svona komið að lykillinn virkar hvorki í frosti né hita.
Svissinn er samt aldrei með vesen.
Þetta er hefbundinn lykill.
Engar fjarlæsing.

