Mig langaði að varpa fram spurningu til ALLRA sem á þessu spjalli eru
Afhverju er þetta svona hjá okkur ,, hér á kraftinum
afhverju er alltaf sama fólkið við stjórnvölinn..
Ekki er ég að lasta störf þeirra .. og ekki myndi ég gefa kost á mér
En það er eflaust fjöldinn allur af einstaklingum hérna sem hefðu áhuga á að leggja eitthvað til málanna,,
Eitt ber einnig að nefna,, til að menn séu gildir meðlimir í kraftinum þurfa þeir að samþykkja,, meðal annars þetta
6. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð sex stofnmeðlimum skv. 4. gr. Formaður er
Gunnar Þorvarðarson. Ef upp kemur að atkvæði falla jöfn gildir atkvæði
formanns sem tvö atkvæði. Stjórnarmenn eru æviráðnir, en geta þeir sagt sig
úr embætti. Það þarf að gera skriflega til formanns félagsins. Ef til þess
kemur að stjórnarmaður segir sig úr embætti skal stjórnin kjósa nýjan
stjórnarmann í hans stað, ef þurfa þykir. Ef kemur til afsagnar er ekki
nauðsynlegt að stjórnin sé skipuð sex manns. Daglega umsjón annast stjórn
félagsins. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar. Stjórnendur hafa
heimild til að hafna aðild að félaginu ef þurfa þykir.
Ég þekki ekki skilyrði L2C en gruna að slíkt sé sambærilegt..
Mikil kynslóðaskipti eru að verða hér á spjallinu,, hellingur af nýjum meðlimum og er óhætt hægt að segja að margir eru í yngri kantinum
((ekkert að því ))
mig langaði að sýna hvernig þetta er hjá stjörnunni og heyra álit ykkar ef þið hafið áhuga á að tjá ykkur um þetta
Vil endurtaka það að ég er ekki að rýra störf stjórnar heldur eingöngu að benda á að til að menn séu samþykkir því að ganga í áhugamannfélagið bmwkraftur.is þá þurfa aðilar að ganga að þessum skilyrðum..
sem mér finnst alveg vera á mörkum þess að geta talist siðferðilega rétt
En það stenst lög,, ég hef kannað það..
Nóg um það,,
hér fyrir neðan er svo fundarboðun stjörnunnar
Aðalfundur Mercedes-Benz klúbbs Íslands
Aðalfundur félagsins verður haldinn þann 10. apríl 2008, kl. 20:30 á Hótel Loftleiðum í þingsal 8.
Dagskrá fundarins:
• Setning
...Formaður setur fundinn og leggur fram tillögu um fundarstjóra sem borin er upp til samþykktar fundarmanna.
...Fundastjóri tekur við stjórn, og skipar fundarritara að tillögu stjórnar. Borið upp til samþykktar.
• Skýrsla formanns.
• Skýrsla gjaldkera, gjaldkeri leggur fram reikninga.
• Umræður um skýrslu og reikninga.
• Reikningar bornir upp til samþykktar. (kaffihlé)
• Kosning stjórnar og varamanna.
...Kosning formans.
...Kosning fjögurra meðstjórnanda
...Kosning í varastjórn (1-2 menn).
• Kosning í nefndir.
...Vefnefnd/stjórn
...Ferða og skemmtinefnd.
• Umræður um önnur mál.
• Fundi slitið af fundastjóra.
Stórn mmmmmmmm klúbbs Íslands.


