já ég veit ekki alveg hvað ég geri við glitaugun, er með almálun á dagskrá þannig að ég geri örugglega eitthvað í þessu þá.
Ég keypti bílinn nú bara til að nota sem vetrarbíl, en seldi svo BMW'inn......
Hann hefur allavega reynst mér vel........ fannst hann rosa sprækur fyrst en núna finnst mér aflið bara ekkert spes þannig lagað.
Ætlaði aldrei að fara að eyða neinu í hann nema bara viðhaldi en núna er ég búinn að festa mér fjöðrun, er að leita að nýjum felgum og þarf að heilsprauta hann.
Hugsa að ég eigi þetta bara þangað til ég hef efni á BMW sem mig langar virkilega í, er ekki spenntur fyrir því í augnablikinu að fá mér BMW nema M bíl.
kv. Jakob B. Bjarnason