Fyrir stuttu þá var group buy í gangi á r3v á Ireland Engineering swaybar kit-um.
Gaurinn sem var að selja lúkkaði mega solid, virtist búinn að selja slatta þarna og með 150 pósta.
Hann er með online búð sem er www.dpistore.net.
Eftir að það voru búnar að líða 3 vikur frá því að borgað var fyrir kit-in og vika frá því að gaurinn hafði loggað sig inn þá fóru menn að hætta að lítast á blikinu. Við fórum að rannsaka þetta og þetta lítur allt út fyrir að vera heljarinnar scam hjá gaurnum. Ég hafði sambandið við Jeff Ireland sjálfan og hann sagði mér að þessi gaur sem auglýsti þetta hafði haft samband við þá en aldrei pantað neitt ==== great engin swaybars á leiðinni fyrir okkur.
Eftir að hafa rannsakað þetta meira þá virðist hann hafa gert það sama á e30tech.com þannig að þetta er nánast 100% scam.
Ég og hinir 10 sem að tókum þátt í group buyinu erum allir búnir að gera paypal claim. Ég lagði inná gaurinn 1140$ sem er slatti af peningum fyrir fátæka námsmenn aka ég og Aron
Mig langaði að forvitnast með eitt... er eitthvað sniðugt fyrir mig að hafa samband við Visa hérna heima eða er nóg að gera paypal claim??
Hérna er þráðurinn, það var á bls 4 sem að menn fóru að gruna eitthvað
http://www.r3vlimited.com/board/showthread.php?t=103442






