http://www.visir.is/article/20080229/FRETTIR01/80229042
Látinn eftir umferðarslys á Akranesi
Annar drengjanna sem lenti í hörðum árekstri á Akranesi þann 18. febrúar lést í gær á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hann hét Þorvaldur Kristinn Guðmundsson, var fæddur 1989, til heimilis að Höfðabraut á Akranesi.
Þorvaldur var farþegi í bifreið sem ekið var á húsvegg á Vesturgötu á Akranesi. Félagi hans var við stýrið og slasaðist hann einnig. Þetta er annað banaslysið í umferðinni á þessu ári.



