konunnar ætti þannig að fara á fullt og hún ætti að fá sterka fullnægingu.” Hjónin ákváðu að reyna þetta og réðu til sín fjallmyndarlegan og vöðvastæltan mann til að veifa handklæðinu. Þrátt fyrir það gekk henni ekkert betur að fá fullnægingu. Þau ákváðu því að tala aftur við lækninn. Hann ráðlagði þeim að skipta um hlutverk. “Nú skuluð þið fá unga manninn til að fara í rúmið með konunni á meðan þú veifar handklæðinu,” sagði hann við gamla manninn. Aftur ákváðu þau að fara að ráðum læknisins og fór ungi maðurinn í rúmið með konunni á meðan sá gamli sá um handklæðið. Ekki leið á löngu þar til konan fékk gríðarlegar fullnægingar, aftur og aftur svo herbergið lék á reiðiskjálfi. Þegar þau höfðu lokið sér af leit sá gamli brosandi á unga manninn. “Þarna sérðu,” sagði hann sigri hrósandi. “Það er SVONA sem maður á að veifa handklæði.”

hehe, þessi er góður
