Er farinn að leita að sumarfelgum og held að þessar aftari (án boltanna) gætu farið vel undir þeim hvíta. En ég er ekki alveg til í að eyða tæpu bílverðinu í felgur undir hann þannig að ég var að velta fyrir mér hvort einhver vissi um replicur af þessu?
Finn replicur af þessum með boltunum en er ekki alveg jafn hrifinn af þeim.
Nú og ef menn eru með einhverjar hugmyndir um hvaða felgur kæmu best út á hvítum E34 fyrir um 0 - 150þús þá væri gaman að heyra þær.
Kveðja



