bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 19. May 2025 19:59

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 5 posts ] 
Author Message
PostPosted: Wed 04. Dec 2002 22:11 
Prolong umboðið á Íslandi.

Ég er hér til að svara spurningu um hvort það sé óhætt að nota Prolong smurmeðferð á BMW vélar og gírkassa! Prolong er náttúrulegt smurefni og er með öllu hættulaust til notkunar á hreifiparta og hefur ekki áhrif á ábyrgðir bílaframleiðenda. Staðreyndin er sú að smurolíur hafa aldrei verið betri en nú,en smurolíur hafa sínar takmarkanir og við mikið álag og núning skapast mikill hiti og þensla málma sem veldur meira sliti og endar með vélarbilunum. Smurolíur þynnast við hátt hitastig og forðast hita og álagsfleti.

Grunnur Prolong efnanna er uppsettur af hreinum olíubasa 10-15 Cst og inniheldur ekki plastefni, PTFE resins (Teflon), grahite, molybdenum disulfide, eða önnur efni sem geta verið skaðleg og byggast upp í vélum. Prolong efnabasinn er framleiddur skv bestu fáanlegum stöðlum sem nefnast CP´s og er útgefinn af Lubrasoil sem er með fleiri hundruð heimsleyfi. Þeir gefa út staðla og framleiða gæðaefni í olíur fyrir stærstu olíuframleiðendur heims

Prolong hefur einnig heimsleyfi á efni sem nefnist AFMT sem stendur fyrir Anti-Friction Metal Treatment. Eiginleiki þessarar vísindalegu blönduðu málmmeðferðar efnasamsetningu er að hún vinnur á efna molecul rafeindum málma og leitar á málmfleti og er sérhönnuð til að blandast við vélarolíur og önnur bætiefni af þessu tagi, hvort sem sé um að ræða náttúruolíur eða gerviolíur. Prolong vinnur öfugt við smurolíur, í stað þess að forðast hita, sækir Prolong í hann og heldur niðri hita og þenslu málma, Þessa (Patented) vöru, skal ekki bera saman við venjuleg "bætiefni". Prolong þolir háan þrýsting og hátt hitastig. Minnkar mótstöðu, slit og veitir smurningu og smurvörn við ræsingar véla.

Gefur hámarks tækja og vélarlíf og er eldsneytis og orkusparandi.

Árangur í Íslensku mótorsporti með Prolong smurefnunum eru með ólíkindum og er Prolong orðið eitt mest notaða smurefnið á Íslandi í þeim efnum. Við erum með mörg virtustu fyrirtæki landsins sem notendur á Prolong smurefnum svo sem: Samskip, Eimskip, Vélamiðstöð RVK, Áhaldahús Kópavogs, Hampiðjan, Ísal, Íslenska Járnblendifélagið, Sementsverksmiðjan, Steinullarverksmiðjan, Sorpa, Hringrás endurvinnsla, GP kranar, Vífilfell og mörg önnur ánægð fyrirtæki.

Verið velkominn á vef okkar www.kbergmann.com

Kveðja
Kristján Bergmann 8) 8) 8) 8)


Top
  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Dec 2002 22:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Einmitt

Gott mál, kannski að maður fari bara að kaupa dót frá ykkur

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 05. Dec 2002 01:44 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Posts: 1690
Location: BIRK
Sammál hér

Kannski maður prófi næst þegar maður skiptir um olíu :D

_________________
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 05. Dec 2002 09:34 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ég er dálítið spenntur fyrir þessu sko;)

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 05. Dec 2002 13:02 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 22:19
Posts: 164
Location: Mosó
endilega prufið þið prolong. ég er að vinna á smurstöð og hef selt prolong með góðum árangri þar sem efnið er að virka....

startpakkinn er á 3000 kr. þá færð þú prolong á vélina og einnig í bensíntankinn...
næst þegar þú smyrð færð þú helmings skammt á vélina..... þannig að þá er það ódýrara....

og þú ert að fá efni sem er að virka og verndar bílinn þinn...

einnig er hægt að setja á gírkassa og drif þá er sett frá 5-10% prolong á móti magni sem er á gírkassa eða drifi...

Davíð Freyr

_________________
Dabbi Xeron
BMW 323i '82 E21 (Seldur)
Jeep Cherokee Laredo 38" Blár(Heitir Blámi)
Colt '91


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 5 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 6 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group