Sælir BMWkrafts félagar.
Ég hef verið svolítið að brjóta heilan svolítið varðandi BMWkraft.
Ég hef verið að velta fyrir mér hver ættu að vera markmið og hlutverk klúbbsins og hvernig við best gætum náð þeim. Það er gott og gilt að hafa spjallborð eins og þetta borð er í dag. En ég hef í svolítin tíma, síðustu 2 ár eða svo, verið að hugsa um hvort ekki væri rétt að hafa starfsemina ennþá víðtækari.
Það helsta sem mér kom í huga er eftirtalið (og ekki í endilega í þessarri röð eftir mikilvægi):
a) Sameina BMW áhugamenn á Íslandi (og erlendis sem hafa áhuga á BMW á íslandi), nefni þá "okkur" hér á eftir.
b) Vera miðill okkar til að tjá okkur um málefni hversdagsins eins og hefur verið á þessarri síðu til þessa.
c) Gera okkur að sem sterkastri heild til að knýja fram hagstæðustu kjör varðandi viðhald og breytingar bifreiða okkar. Og þá jafnframt til að standa vörð um að ekki sé verið að fara illa með félaga fjárhagslega ef slíkt er reynt.
d) Geta leyst úr vandræðum félagsmanna þegar bilanir koma upp í bifreiðum. Ekki þá beint að hafa á okkar snærum aðila í slíku, en að geta vísað á aðila sem leyst geta vandann. Þá annarsvegar umræðudálk varðandi bilanir, og svo fróða menn á vegum klúbbsins sem geta vísað á aðila sem gætu leyst flóknari mál sem ekki fást svör við hjá öðrum félagsmönnum.
e) Standa fyrir samkomum, líkt og verið hefur. En með öflugri samtökum gætum við haft samkomurnar ennþá meira spennandi með að heimsækja staði, eins og verkstæði og fyrirtæki í bílageiranum (og utan geirans líka.) Þá væri líka hægt að setja sig í samband við önnur samtök erlendis og eða fyrirtæki. Mig langar t.d. sérstaklega mikið að heimsækja "Mobile tradition" deild BMW úti í þýskalandi, sem er ekki opin fyrir gesti og gangandi. En hver veit nema hægt væri að kría út svoleiðis ferðir! Svo væri hægt að fara á fræga staði eins og Nurburgring ofl ofl. Ég hef alveg slatta af hugmyndum í viðbót
f) Ef vel árar hjá félaginu, að gefa þá út dreifibréf til félagsmanna, með tilkynningum, greinum, auglýsingum ofl. Ekki eitthvað glossy, heldur bara svona frekar einfalt.
Þetta er nú bara svona tekið ú heilanum á mér í fljótu bragði, og án efa miklu hægt að bæta við og breyta. En til að hægt sé að gera klúbbinn öflugri og skilvirkari held ég að við þyrftum að hafa þetta örlítið formfastara.
Ég hef ekki sett mig inn í þessi mál neitt ennþá, en mín hugmynd er að við kjósum okkur félagsstjórn. Fáum inn allavega 3 menn, sem eru kosnir til ákveðins tíma í senn (ár í það minnsta) og mynda stjórn. Stjórnin verði þá mynduð af Formanni, varaformanni og gjaldkera. Svo er hægt að prjóna við þetta áfram fleiri embætti. Þessir menn geta þá án þess að vera hræddir um að vera eitthvað að vaða yfir aðra, talað fullum hálsi fyrir klúbbinn svo þetta líti nú mannsæmandi út þegar við eigum samskipti við utanaðkomandi aðila.
Að sjálfsögðu væru þessi störf ólaunuð, og menn þessir þyrftu að vera aðilar sem við treystum og hefðu óbilandi áhuga á okkar ágætu gripum og velferð þeirra ásamt eigenda.
Mín hugmynd er þá að netið væri fínn miðill til að halda kosninga áróðri uppi og menn gætu sett saman pistil um sig, til að kynna sig fyrir félögunum. Tilvalið væri þá að óska eftir framboðum, og frambjóðendur settu þá fram upplýsingar um sig eftir fyrirfram ákveðnu sniði (að hluta til). Ásamt fleiru eins og t.d. stuðningsmönnum. Kosningin væri svo annað mál, ég hef ekki séð ennþá fyrir mér hvernig best væri að standa að henni.
Varðandi klúbbinn og meðlimi, þá er ég hlynntur því að við tökum upp inntökugjald, stillt í hóf, ásamt árgjaldi. T.d. 2000 kr. og væri þá innifalið í því límmiðar og félagsskírteini (og mögulega fleira, ss. derhúfu osfrv). Með að hafa félagsskírteinið í höndunum, fá menn svo afslátt hér og þar, og borgar félagssgjaldið sig upp fljótt þannig og ætti ekki að standa klúbbnum fyrir þrifum.
Hægt væri þá að nota peninginn til að gera líkt og þeir hjá T.B. gerðu fyrir okkur, þegar dyno-dagurinn var. Kaupa gos og slíkt á samkomum, ásamt því að greiða fyrir límmiðana og skírteinin (ef við fáum ekki B&L til að gera þau eins og ennþá sniðugra væri). Svo á örugglega eftir að koma fleira til sögunar, þar sem gott væri að hafa örlítinn sjóð til að greiða úr fyrir hitt og þetta (auglýsa klúbbinn t.d. í D.V.).
Jæja, ég bara varð að tappa aðeins af heilanum í bili, svo ég geti farið að hugsa um eitthvað annað... ekki það að ég geti hugsað um neitt annað en BMW yfir höfuð! ....
Jæja, nóg í bili. Með kærri BMWKrafts-kveðju;
Sæmi BMW vifta