Norræna vs. Flug & bíll

Hér skal spjalla um BMW.

Norræna vs. Flug & bíll

Postby Gunnar Þór » Thu 14. Feb 2008 12:17

Hefur einhver reynslu af því að fara með krakka í Norrænu? Er að gæla við að taka smá Evrópupakka í sumar með familíuna (Danmörk, sumarhús í DE og Holland).

Er þetta Norrænudæmi eitthvað sem er hægt að bjóða fjölskyldunni uppá eða á maður bara að taka flug&bíl (virðist koma niður á svipuðum prís).

Væri gaman að heyra hvort einhver hefur reynslu af þessu :)
MY2002 E46 330d Touring - Mr.X remap
User avatar
Gunnar Þór
Kassabílstjóri
 
Posts: 205
Joined: Sat 12. Aug 2006 19:59
Location: Hafnarfjörður

Postby Arnarf » Thu 14. Feb 2008 12:22

Well, ég hef reynslu sem krakki að fara í norrænu (ætli ég hafi ekki verið 12-13) og mér fannst það bara helvíti skemmtilegt

Rosa skemmtileg tilbreyting að fara sjóleiðina til útlanda
User avatar
Arnarf
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 827
Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48

Postby bjornvil » Thu 14. Feb 2008 12:29

Blessaður vertu, það getur ekki verið mjög slæmt, nú eiga allir fjölskyldur orðið fartölvur og flestir krakkar einhverjar svona portable leikjatölvur. Það ætti allavega ekki að vera vandamál að hafa ofan af fyrir þeim.
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík

Postby Einarsss » Thu 14. Feb 2008 12:49

Er ekki málið bara að taka svo ferjuna frá noregi til baka ... þá ættiru að sleppa við 2 daga dvöl í færeyjum
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Gunnar Þór » Thu 14. Feb 2008 13:09

takk fyrir svörin strákar - var líka að pæla í þessum klefum, hvort þetta er sæmilegt eða einhverjir Herjólfsklefar?

Líklega must að vera með gluggaklefa...
MY2002 E46 330d Touring - Mr.X remap
User avatar
Gunnar Þór
Kassabílstjóri
 
Posts: 205
Joined: Sat 12. Aug 2006 19:59
Location: Hafnarfjörður

Postby Thrullerinn » Thu 14. Feb 2008 14:48

Í mjög slæmum sjó þá er best að vera neðarlega fyrir miðju...
einmitt þar sem mikið af svefnpokaplássinu er.. :)

Mér persónulega leiðist norræna, hef farið tvisvar með henni.

Hinsvegar er þetta hundódýrt og líka svolítil stemming að fara ekki "í loftið"
svona einu sinni á ferðalögum.

Zimmer Dimm all the way 8)

eitthvað hér...
http://bmwkraftur.is/greinar/skoda.php?id=7
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby gunnar » Thu 14. Feb 2008 15:17

Norræna er ágæt, mæli með að vera með ferðatölvu fulla af einhverju til að glápa á, tók einmitt rönn á 24 þegar ég fór. Það var ágætt að sötra bara bjór og glápa á 24. Þetta getur verið hundleiðinlegt í vondum sjó eins og ég lenti í þegar ég var á leiðinni út. Ég hrundi úr kojunni um miðja nótt og lenti á náttborðinu með tilheyrandi látum og allt drasið fór útum allt.

En það var nátturulega mjög slæm skilyrði. Mæli hiklaust með að prufa þetta samt.. Snilld líka að fá að stoppa í Færeyjum.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Gunnar Þór » Thu 14. Feb 2008 15:24

gunnar wrote:Norræna er ágæt, mæli með að vera með ferðatölvu fulla af einhverju til að glápa á, tók einmitt rönn á 24 þegar ég fór. Það var ágætt að sötra bara bjór og glápa á 24. Þetta getur verið hundleiðinlegt í vondum sjó eins og ég lenti í þegar ég var á leiðinni út. Ég hrundi úr kojunni um miðja nótt og lenti á náttborðinu með tilheyrandi látum og allt drasið fór útum allt.

En það var nátturulega mjög slæm skilyrði. Mæli hiklaust með að prufa þetta samt.. Snilld líka að fá að stoppa í Færeyjum.

Það er einmitt það sem ég hef áhyggjur af - hvort þetta sé einhver sjóveikisdallur og allir ælandi og spúandi :?

Hef nú ekki miklar áhyggjur af sjálfum mér, en nenni ekki að vera með konuna og börnin vælandi alla leiðina :wink:
MY2002 E46 330d Touring - Mr.X remap
User avatar
Gunnar Þór
Kassabílstjóri
 
Posts: 205
Joined: Sat 12. Aug 2006 19:59
Location: Hafnarfjörður

Postby _Halli_ » Thu 14. Feb 2008 15:59

Ég fór frá DK til Íslands í september síðastliðinn, það var VONT í sjóinn, en ég tók ekki eftir einni einustu manneskju í drekaleik um borð.

Við vorum í klefa fyrir hreyfihamlaða (veit ekki af hverju) en hann á að vera sambærilegur við A4 útiklefa (getur skoðað það á heimasíðunni). Mjög þægilegur klefi með 4 rúmum, fínasta baðherbergi með góðri sturtu og hægt að glápa á bílaþætti á Discovery allan sólarhringinn :lol:
Minnir að klefinn hafi verið á 5. dekki, allavega vorum við í næst neðstu klefunum með kýrauga.

Manni myndi örugglega ekki leiðast of mikið þarna sem krakki, sundlaug, bíó og svo geturðu kennt þeim fjárhættuspil. Annars steinrotast maður af sjóveikitöflunum! (samræmist kannski ekki hugmyndum um fjölskyldufrí að hafa alla steinrotaða).

Bottom line... mæli með þessu, mjög gaman að duggunni!
Neðanjarðarlestir, sporvagnar og strætisvagnar
BMW E36 '91 318i - Bifreið - R.I.P
Dethleffs Rondo RF3 '98 - Hjólhýsi - Í vetrardvala
CombiCamp 2000 '78 - Tjaldvagn - SELDUR
User avatar
_Halli_
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 424
Joined: Tue 31. May 2005 19:39
Location: Oslo

Re: Norræna vs. Flug & bíll

Postby Mánisnær » Thu 14. Feb 2008 17:07

Gunnar Þór wrote:Hefur einhver reynslu af því að fara með krakka í Norrænu? Er að gæla við að taka smá Evrópupakka í sumar með familíuna (Danmörk, sumarhús í DE og Holland).

Er þetta Norrænudæmi eitthvað sem er hægt að bjóða fjölskyldunni uppá eða á maður bara að taka flug&bíl (virðist koma niður á svipuðum prís).

Væri gaman að heyra hvort einhver hefur reynslu af þessu :)

Hvað ertu búinn að reikna með að það kosti að fara með bíl til DK?

Og hvað er þetta löng sigling?
User avatar
Mánisnær
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1770
Joined: Tue 22. Mar 2005 12:31
Location: Vesturbæ Reykjavíkur

Postby Bjarkih » Thu 14. Feb 2008 17:21

Ég myndi ekki gera börnunum mínum þann grikk að fara í þennan skítadall. Nema þá þau séu það ung að maður þurfi ekki að græja afþreyingu. Hef farið 5 sinnum og það þarf sterk rök til að ég geti hugsað mér að fara aftur.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby Angelic0- » Thu 14. Feb 2008 19:05

_Halli_ wrote:Ég fór frá DK til Íslands í september síðastliðinn, það var VONT í sjóinn, en ég tók ekki eftir einni einustu manneskju í drekaleik um borð.

Við vorum í klefa fyrir hreyfihamlaða (veit ekki af hverju) en hann á að vera sambærilegur við A4 útiklefa (getur skoðað það á heimasíðunni). Mjög þægilegur klefi með 4 rúmum, fínasta baðherbergi með góðri sturtu og hægt að glápa á bílaþætti á Discovery allan sólarhringinn :lol:
Minnir að klefinn hafi verið á 5. dekki, allavega vorum við í næst neðstu klefunum með kýrauga.

Manni myndi örugglega ekki leiðast of mikið þarna sem krakki, sundlaug, bíó og svo geturðu kennt þeim fjárhættuspil. Annars steinrotast maður af sjóveikitöflunum! (samræmist kannski ekki hugmyndum um fjölskyldufrí að hafa alla steinrotaða).

Bottom line... mæli með þessu, mjög gaman að duggunni!

Síðasta reynsla mín af sjóveikitöflum var alls ekki góð..

Allavega nokkur skyldmenni sem að hlóu dátt þegar að kallinn var að tala við tré og ljósastaura..
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Xavant » Thu 14. Feb 2008 19:34

Angelic0- wrote:

haha, Replay í kvöld? langar virkilega sjá þig í þannig ástandi :lol: :lol:
Kv.Gissur

Dótakassinn
E39 '96 540i - SS200
Honda CBR600 F4i '06

Seldir
E39 '97 528i
E39 '98 540i
E36 '95 325i
E28 '81 520i
E34 '93 525i
E46 '02 325i
User avatar
Xavant
Getawaybílstjóri
 
Posts: 902
Joined: Thu 20. Apr 2006 18:52
Location: cruizin on 540 8)

Postby 20"Tommi » Fri 15. Feb 2008 16:37

Halli sagði það sem ég ætlaði að segja nema það er finnt að fá sér 2-3 bjóra með töflunum og horfa svo á bilaþættina.
En að öllu gammni slepptu þá er þetta mjög gott sjó skip mæli 100% með þessu..
20"Tommi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 716
Joined: Fri 23. Nov 2007 13:40

Postby Angelic0- » Fri 15. Feb 2008 16:43

Xavant wrote:
Angelic0- wrote:
_Halli_ wrote:Ég fór frá DK til Íslands í september síðastliðinn, það var VONT í sjóinn, en ég tók ekki eftir einni einustu manneskju í drekaleik um borð.

Við vorum í klefa fyrir hreyfihamlaða (veit ekki af hverju) en hann á að vera sambærilegur við A4 útiklefa (getur skoðað það á heimasíðunni). Mjög þægilegur klefi með 4 rúmum, fínasta baðherbergi með góðri sturtu og hægt að glápa á bílaþætti á Discovery allan sólarhringinn :lol:
Minnir að klefinn hafi verið á 5. dekki, allavega vorum við í næst neðstu klefunum með kýrauga.

Manni myndi örugglega ekki leiðast of mikið þarna sem krakki, sundlaug, bíó og svo geturðu kennt þeim fjárhættuspil. Annars steinrotast maður af sjóveikitöflunum! (samræmist kannski ekki hugmyndum um fjölskyldufrí að hafa alla steinrotaða).

Bottom line... mæli með þessu, mjög gaman að duggunni!

Síðasta reynsla mín af sjóveikitöflum var alls ekki góð..

Allavega nokkur skyldmenni sem að hlóu dátt þegar að kallinn var að tala við tré og ljósastaura..

haha, Replay í kvöld? langar virkilega sjá þig í þannig ástandi :lol: :lol:

Nei takk :!:
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests