Var að keyra um daginn og skyndilega komu upp einhverjar mjög skrítnar gagntruflanir, þetta er E34 540 btw.
Þetta lýsir sér þannig að hann missir allan kraft og rétt prumpast áfram, í brekku þá gefst hann nær allveg upp og ég gat rétt komið honum heim, samt drap hann ekki á sér. Erfitt að lýsa þessu en það er hálfpartinn eins og hann nái ekki að anda þ.e. kemst ekki á snúning og þegar maður ýtir á bensínið þá bara kokar hann. Það hefur verið skipt um o2 skynjara, sveifarásskynjara og knastásskynjara og kertin eru ný.
Ég hef ekki prófað að keyra hann eftir að þetta gerðist en ég held að vandamálið sé ekki viðvarandi því hann hefur látið svona áður og hann hefur verið í lagi í millitíðinni. Ég var líka búinn að keyra í dágóðan tíma þegar þetta kom upp og bíllinn því vel heitur.
Eitt sem ég tók eftir er að pústið var sjóðandi heitt þegar ég hafði komið honum heim, getur verið það sé einhver stífla í hvarakútnum sem veldur þessu? Annars væri fínt að fá innlegg frá ykkur sérfræðingunum um hvað gæti valdið þessu.


