Ég var að velta því fyrir mér hvernig það lýsir sér þegar hvarfakúturinn er orðinn slappur, ég er búinn að vera lenda í því að bíllinn blæs út alveg helling af gufu, maður þarf að keyra hann í allavega klukkutíma svo að hún hætti að koma. Mér dettur í hug að það sé gat á hvarfakútnum eða þá að það er einhvernmegin að safnast vatn inn í hann sem veldur þessari gufu, eða er það kanski eðlilegt þegar maður er með 540 útaf stærð vélarinnar sem það kemur sona mikil gufa í útblæstrinum?. Svo er heldur enginn skrítin lykt af útblæstrinum, eins og olíulykt eða eitthvað, þannig að ég held að þetta sé ekkert annað en vatn í hvarfakútnum/pústkerfinu.
Svo var ég líka að pæla hvort að e34 540 komist í gegnum skoðun án þess að vera með hvarfakút?


