Hvað merkir það ef að að ABS gula ljósið í mælaborðinu fer að lýsa tilviljunarkennt.
Þar er að segja þegar að ég er kannski búinn að keyra í svona 5 mín þá fer það allt í einu að lýsa. Slokknar svo aftur kannski. Lýsir svo næst þegar að ég set bílinn í gang og svo kannski lýsir það ekki í viku en fer svo aftur að lýsa upp úr þurru. Ég var farinn að fá á tilfinninguna að þetta hlyti að hafa eitthvað að gera með snjóinn. Keyri bílinn minn þó aldrei í þungu færi.
Hvað á þetta ljósavesen hugsanlega að þýða ?
UPDATE:
ákvað bara að vekja gamla þráðinn í stað þess að búa til nýjan.
Þegar að það fór að hitna og snjórinn fór að minnka þá hvarf þetta ljós í langan tíma.
Ég var búinn að gleyma þessu vandamáli þar til að um daginn að það kviknaði í rigningu. Ég opnaði húddið og reif öll ABS öryggin úr og setti þau aftur í og BINGÓ. ABS ljósið slokknaði. En svo fer það að lýsa aftur þegar að ég er búinn að keyra svona 30 km leið. Það slokknar ekki nema að ég hreyfi við öryggjunum. Ljósið er stunum lengi slökkt en fer alltaf aftur að lýsa eftir nokkra vegalengd í akstri.
Er þetta sambandsleysi í Öryggjaboxinu og hvað væri hægt að gera í því ?
ps.
Ég er búinn að prufa að kaupa ný og ný öryggi og skipta þannig að þau eru ekki að klikka.


