Hvernig væri að notendur á spjallinu færu að tileinka sér það að setja í fyrirsögn þráðar sem þeir stofna til, vísbendingu um hvað þráðurinn snýst um?
Það er alltof algengt að hér sjáist fyrirsagnir eins og:
Vitið þið...
Hjálp...
BMW til sölu...
Vantar geðveikt...
Væri nú ekki sniðugra að setja inn:
Vitið þið hvernig maður losar í 318i 2001...
Hjálp með hlut á húddinu á E46
BMW 520 1999 til sölu
Vantar geðveikt stefnuljós á E34
Ókei, það vita ekki allir týpunúmerin á BMW, það er eðlilegt. En það geta flestir náð í skráningarskírteinið og skrifað það sem stendur þar ef ekki vill betur til.
Það er agalega leiðinlegt þegar stór spjallborð eins og þetta eru farin að fá inn fullt af póstum sem erfitt er að sjá um hvað snúast. Erfitt að leita að umræðum eftirá og að fylgjast með hvað er í gangi á sínum tíma.
Mér finnst þetta nettur dónaskapur við aðra notendur. Þegar ætlast er til að fólk lesi ummælin manns og svari þeim, að geta þá ekki að lágmarki haft ummæli sín og eða spurningar þannig að það sjáist í fljótu bragði hvað er verið að ræða um.
Hvað finnst ykkur notendum um þetta mál?


