Ég var að velta því fyrir mér hvort að það væri ekki einhver hérna sem að gæti frætt mig aðeins um z3 roadsterana og coupe bílana sem að eru til á landinu.
Ég er búin að leita á þessu spjalli og öðrum en ekki búin að finna mikið nema gamla þræði og eflaust annað ástand á flestum bílunum þá en núna...
Veit að það eru allavegana 2 coupe, 1 svartur og annar blár, sá seinni í frekar vafasömu ástandi...
Þessa hef ég líka séð á netinu...:
1x svartur M
1X M AC-Schnitzer
Grár M í eigu Svezel
2X svartir
1X blár
Allar upplýsingar eru vel þegnar, gæti vel hugsanlega haft hug á að eignast eina af þessum elskum.


