Lánalöggan

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby bebecar » Fri 01. Feb 2008 20:27

camaro F1 wrote:[quote="bebecar
En annars skil ég Sæma mjög vel. Það er hálf asnalegt að tala um að maður eigi eitthvað ef maður skuldar það í topp. Það væri þeim bara hollt að líta á skattskýrsluna sína til að sjá hvort þeir raunverulega eiga eitthvað! En það breytir náttúrulega ekki því að lagalega hliðin er eins og Fart segir. Manni má samt alveg finnast þetta asnalegt (eins og tekið var undir hér í þræðinum reyndar).

Ég man reyndar vel eftir því í "den" að þá var t.d. ritað á reikninga fyrir vörum að hún væri í eigu seljanda þangað til að hún væri að fullu greidd. Kannski ætti það bara vel við í dag :D

Svo vil ég nú taka upp hanskann fyrir Sæma því mér finnst hann vanda sig mjög og aldrei hafa sýnt hér hroka.



Það skilja allir her, held ég hvað var átt við hjá sæma, það er ekki vandamálið.....

snýst ekki um að skilja þetta.... comment....

heldur hvernig því er komið framm og afhverju????.....

btw. Sæmi er fínn gaur, veit það fyrir víst....




:arrow: En..... bebcar þú ert sem sé að segja að maður á ekki íbúðina ef hún er að hluta til veðsett.....

sé ekki munin á þessu....

kv bæzi

over and out....
[/quote]

Nei, það var ekki það sem ég sagði :D
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby saemi » Fri 01. Feb 2008 22:04

Alpina wrote:
camaro F1 wrote:
Ég man reyndar vel eftir því í "den" að þá var t.d. ritað á reikninga fyrir vörum að hún væri í eigu seljanda þangað til að hún væri að fullu greidd. Kannski ætti það bara vel við í dag





HAHA,, virkilega þörf og góð áminning

MEGA gott innlegg =D>


Þetta kom frá Ingvari... ekki Nonna ....... betra að quota í réttan aðila :D
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby fart » Fri 01. Feb 2008 22:11

Norðurlandamet innanhús í röngum kvótum.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby srr » Fri 01. Feb 2008 23:06

Kristjan wrote:Bottom line is, að það er kjánalegt að fólk er alveg hætt að safna sér fyrir því sem það kaupir.

Ég á 7 bíla, skuldlaust :lol:
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Postby Kristjan PGT » Fri 01. Feb 2008 23:38

Núna er ég með súkkuna mína. Ég skulda um 30% í henni og hún er á bílasamning. Sem sagt, ég er skráður "umráðamaður". Mér er alveg sama hvað þig segið en ég Á þennan bíl.

Og annað. Nú leigi ég íbúð en þetta er samt mín íbúð í daglegu tali. Ég hringi ekki í mína vini og býð þeim í matarboð heima hjá fólkinu sem ég leigi hjá....?
Kristjan PGT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1610
Joined: Sat 03. May 2003 18:34

Postby ///MR HUNG » Sat 02. Feb 2008 01:04

saemi wrote:
Alpina wrote:
camaro F1 wrote:
Ég man reyndar vel eftir því í "den" að þá var t.d. ritað á reikninga fyrir vörum að hún væri í eigu seljanda þangað til að hún væri að fullu greidd. Kannski ætti það bara vel við í dag





HAHA,, virkilega þörf og góð áminning

MEGA gott innlegg =D>

Þetta kom frá Ingvari... ekki Nonna ....... betra að quota í réttan aðila :D
Þessi þráður er orðinn alveg :drunk:
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image
User avatar
///MR HUNG
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6493
Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Location: Hrafnista

Postby Spiderman » Sat 02. Feb 2008 01:55

Guffi bílasali sagði í fyrsta skipti eitthvað af viti í dag á Bylgjunni "Íslenskur bílamarkaður er kominn út í tóma vitleysu". Þannig er það bara, menn hljóta að viðurkenna það hvort sem þeir spila með eða ekki. Mig grunar að margir braskararnir sem ekki hafa getað losað bíla undanfarin misseri lifi á bílalánum. Þeir sem eiga stærstan þátt í þessu eru óábyrgar lánastofnanir :!:
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote: Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual
User avatar
Spiderman
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1117
Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Location: Hafnarfjörður

Postby Zyklus » Sat 02. Feb 2008 03:21

Djofullinn wrote:
Zyklus wrote:Finnst alltaf jafn fyndið þegar fólk talar um að það „tími“ ekki að hafa mikinn pening liggjandi í bíl, en samt er þetta sama fólk tilbúið að borga um og yfir 17% vexti (plús annan lántökukostnað). Til að eitthvað vit sé í þessu þarf þetta fólk að fá kannski yfir 20% ávöxtun til að vega upp á móti kostnaði af láninu. En það fæst hvergi örugg 20% ávöxtun.

Þannig að annað hvort er fólk almennt svona miklir fjármálaspekúlantar að það nái auðveldlega svona hárri ávöxtun eða það hefur ekki alveg hugsað þetta til enda (sem er líklegra).

Vextir á bílasamningi í jen og franka eru um 5,5% (5,49% hjá Avant). Stofngjald er 2,5%, en það breytir náttúrulega ekki neinu fyrir einhvern sem er að yfirtaka lán.
Ekkert stimpilgjald af bílasamningi.
Hlutfallslegur kostnaður er 6,84% samkvæmt Avant.is.

Síðan getur maður lagt peninginn sem maður
á inn á venjulegan netreikning með 13+% vöxtum.


Auðvitað er alveg til í dæminu að það geti verið hagstæðara að taka erlent lán á lágum vöxtum og láta peninginn liggja á háum íslenskum vöxtum. En þá ertu hins vegar kominn með gengisáhættu.

Bara sem dæmi þá er franski frankinn og japanska jenið búið að hækka gagnvart krónunni um sirka 15% síðast liðið hálft ár. Þannig að ef þú hefur tekið lán fyrir hálfu ári í CHF og JPY þá er lánið búið að hækka um 15%. Þannig að þá ertu að greiða vel yfir 20% í vexti.
En eins og ég segi, það getur alveg verið hagstæðara ef krónan styrkist. En það er alltaf óvissan og það að ætla að reyna að spá af einhverju viti fyrir um gengi krónunnar er nánast ómögulegt.

Svo er auðvitað eitt annað í þessu, það er að eins og markaðurinn er í dag þá fær maður yfirleitt ansi ríflegan staðgreiðsluafslátt. Sem gerir samanburðinn enn óhagstæðari fyrir lánin.

aron m5 wrote:hvort finnst ykkur viturlegra þegar maður á kanski hvern bíl i 3-4 mánuði??????


Svo fremi sem kostnaðurinn við lánið er hærri en sú ávöxtun sem þú getur fengið á peninginn þinn þá skiptir ekki máli hvort um er að ræða 3 mánuði eða 3 ár.
En svo er auðvitað allt annað mál ef fyrsti gjalddagi er kannski ekki fyrr en eftir 2-3 mánuði þannig að þú ert með frían bíl í 2-3 mánuði, þá er það auðvitað allt annað mál.
Svo reyndar spilar líka inn í þetta að það virðist vera töluvert auðveldara að selja bíla sem eitthvað er áhvílandi á. Finnst reyndar alltaf jafn kjánalegt að það skuli breyta svona miklu hvort það sé eitthvað áhvílandi eða ekki, það er nú ekki svo erfitt að fara í bankann og fá lán á bíl. Er fólk virkilega svo latt að það nenni ekki að standa í því að redda sér sjálft lán á bíl?

Eitt annað varðandi það ef maður ætlar að eiga bíl í einungis nokkra mánuði og maður er með hann á láni, þá eru flestir með svo kallað jafngreiðslulán en þá borgar þú að lang mestu leyti vexti fyrri hluta lánstímabilsins sem þýðir það að þegar þú ætlar svo að selja bílinn eftir nokkra mánuði þá hefur þú í raun eignast voða lítið í bílnum því greiðslurnar þínar hafa að mestu leyti saman staðið af vöxtum. Eignamyndunin er því lítil fyrst um sinn.

En ef fólk vill taka lán fyrir hlutunum í stað þess að spara þá er það auðvitað þeirra val og ekki ætla ég að agnúast neitt út í það. Þetta er þeirra val.

Varðandi það hvort maður sé eigandi bíls ef maður er með hann á 100% láni þá lagalega séð er maður eigandi bílsins en ég skil mjög vel sjónarmið þeirra sem finnst kjánalegt að tala um að maður eigi bíl þegar maður skuldar hann í botn.

Ps. Sjálfur skrifa ég nú ekki mikið á þetta spjall en les það oft og varðandi það komment einhvers hér fyrir ofan að það gætti hroka í svörum Sæma þá verð ég nú að segja (eins og fleiri hér) að ekki hef ég verið var við þennan hroka. Finnst hann þvert á móti með betri og vandaðri pennum hér.
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby fart » Sat 02. Feb 2008 07:31

Gott innlegg.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby bimmer » Sat 02. Feb 2008 09:35

fart wrote:Gott innlegg.


Sammála.

Svo held ég að eini "hrokinn" hjá Sæma sé að vera ekki hrifinn af
miklum lánum á bílum. Algjör hrokagikkur að eðlisfari :lol:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby A.H. » Sat 02. Feb 2008 13:02

Zyklus wrote:
Djofullinn wrote:
Zyklus wrote:Finnst alltaf jafn fyndið þegar fólk talar um að það „tími“ ekki að hafa mikinn pening liggjandi í bíl, en samt er þetta sama fólk tilbúið að borga um og yfir 17% vexti (plús annan lántökukostnað). Til að eitthvað vit sé í þessu þarf þetta fólk að fá kannski yfir 20% ávöxtun til að vega upp á móti kostnaði af láninu. En það fæst hvergi örugg 20% ávöxtun.

Þannig að annað hvort er fólk almennt svona miklir fjármálaspekúlantar að það nái auðveldlega svona hárri ávöxtun eða það hefur ekki alveg hugsað þetta til enda (sem er líklegra).

Vextir á bílasamningi í jen og franka eru um 5,5% (5,49% hjá Avant). Stofngjald er 2,5%, en það breytir náttúrulega ekki neinu fyrir einhvern sem er að yfirtaka lán.
Ekkert stimpilgjald af bílasamningi.
Hlutfallslegur kostnaður er 6,84% samkvæmt Avant.is.

Síðan getur maður lagt peninginn sem maður
á inn á venjulegan netreikning með 13+% vöxtum.


Auðvitað er alveg til í dæminu að það geti verið hagstæðara að taka erlent lán á lágum vöxtum og láta peninginn liggja á háum íslenskum vöxtum. En þá ertu hins vegar kominn með gengisáhættu.

Bara sem dæmi þá er franski frankinn og japanska jenið búið að hækka gagnvart krónunni um sirka 15% síðast liðið hálft ár. Þannig að ef þú hefur tekið lán fyrir hálfu ári í CHF og JPY þá er lánið búið að hækka um 15%. Þannig að þá ertu að greiða vel yfir 20% í vexti.
En eins og ég segi, það getur alveg verið hagstæðara ef krónan styrkist. En það er alltaf óvissan og það að ætla að reyna að spá af einhverju viti fyrir um gengi krónunnar er nánast ómögulegt.

Svo er auðvitað eitt annað í þessu, það er að eins og markaðurinn er í dag þá fær maður yfirleitt ansi ríflegan staðgreiðsluafslátt. Sem gerir samanburðinn enn óhagstæðari fyrir lánin.

aron m5 wrote:hvort finnst ykkur viturlegra þegar maður á kanski hvern bíl i 3-4 mánuði??????


Svo fremi sem kostnaðurinn við lánið er hærri en sú ávöxtun sem þú getur fengið á peninginn þinn þá skiptir ekki máli hvort um er að ræða 3 mánuði eða 3 ár.
En svo er auðvitað allt annað mál ef fyrsti gjalddagi er kannski ekki fyrr en eftir 2-3 mánuði þannig að þú ert með frían bíl í 2-3 mánuði, þá er það auðvitað allt annað mál.
Svo reyndar spilar líka inn í þetta að það virðist vera töluvert auðveldara að selja bíla sem eitthvað er áhvílandi á. Finnst reyndar alltaf jafn kjánalegt að það skuli breyta svona miklu hvort það sé eitthvað áhvílandi eða ekki, það er nú ekki svo erfitt að fara í bankann og fá lán á bíl. Er fólk virkilega svo latt að það nenni ekki að standa í því að redda sér sjálft lán á bíl?

Eitt annað varðandi það ef maður ætlar að eiga bíl í einungis nokkra mánuði og maður er með hann á láni, þá eru flestir með svo kallað jafngreiðslulán en þá borgar þú að lang mestu leyti vexti fyrri hluta lánstímabilsins sem þýðir það að þegar þú ætlar svo að selja bílinn eftir nokkra mánuði þá hefur þú í raun eignast voða lítið í bílnum því greiðslurnar þínar hafa að mestu leyti saman staðið af vöxtum. Eignamyndunin er því lítil fyrst um sinn.

En ef fólk vill taka lán fyrir hlutunum í stað þess að spara þá er það auðvitað þeirra val og ekki ætla ég að agnúast neitt út í það. Þetta er þeirra val.

Varðandi það hvort maður sé eigandi bíls ef maður er með hann á 100% láni þá lagalega séð er maður eigandi bílsins en ég skil mjög vel sjónarmið þeirra sem finnst kjánalegt að tala um að maður eigi bíl þegar maður skuldar hann í botn.

Ps. Sjálfur skrifa ég nú ekki mikið á þetta spjall en les það oft og varðandi það komment einhvers hér fyrir ofan að það gætti hroka í svörum Sæma þá verð ég nú að segja (eins og fleiri hér) að ekki hef ég verið var við þennan hroka. Finnst hann þvert á móti með betri og vandaðri pennum hér.


Sammála Zyklus-i varðandi ofangreint og einnig varðandi Sæma, hann virðist mér almennt kurteis og sanngjarn í sínum ummælum.
Image
Núna: Z3.
Áður: E21, E30, E36, E38.
User avatar
A.H.
Kassabílstjóri
 
Posts: 151
Joined: Sat 25. Oct 2003 19:40
Location: Grafarvogur

Postby fart » Sat 02. Feb 2008 13:25

Sæmi er hrokafullur eins og allir flugmenn :lol: :lol: :king: :whip:

gamla góða alhæfingin klikkar ekki
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby basten » Sat 02. Feb 2008 13:29

fart wrote:Sæmi er hrokafullur eins og allir flugmenn :lol: :lol: :king: :whip:

gamla góða alhæfingin klikkar ekki


Ertu að tala um "yfirborguðu strætóbílstjórana"? :lol:
Siggi
basten
Getawaybílstjóri
 
Posts: 860
Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Location: Reykjavík

Postby Kristjan » Sat 02. Feb 2008 13:40

basten wrote:
fart wrote:Sæmi er hrokafullur eins og allir flugmenn :lol: :lol: :king: :whip:

gamla góða alhæfingin klikkar ekki


Ertu að tala um "yfirborguðu strætóbílstjórana"? :lol:


Rútubílstjórana.... Ég er part time rútubílstjóri, það er MIKIÐ meira djobb en að vera flugmaður...

Commercial Flugmenn þurfa ekki að þrífa þoturnar, tala við farþegana (nema í neyð) taka farangurinn, stýra draslinu ALLAN tíma (ekkert autopilot í rútum) og þeir geta farið í miðri ferð og fengið kellingu til að færa sér kaffi og meððí...

(Einn sár,,,, djóóók)
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby HelgiPalli » Sat 02. Feb 2008 19:33

Eitt varðandi yfirveðsettu bílana, yfirtökuspilið, einhverstaðar hlýtur þetta að brotlenda?

Rétt eins og með subprime lánavitleysuna í BNA, þá getur svona hot potato leikur ekki gengið endalaust
HelgiPalli
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 297
Joined: Sun 27. Jul 2003 20:34
Location: 101

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 38 guests