saemi wrote:camaro F1 wrote:Hvaaa ertu eitthvað viðkvæmur fyrir því hvað mér finnst um bíla á 100% lánum ...
Svo ég segi nú AFTUR það sem ég sagði hér að ofan. Ég er að tala um yfirtökubílana, bíla sem eru á 100% lánum. Ég er ekki að tala um öll lán.
Það sem ég er að meina er hvað mér finnst það asnalegt þegar menn tala um bílana "sína" þegar áhvílandi er sama og verð bílsins. Það finnst mér vera eins og að leigja íbúð. Ef þú ætlar að kaupa íbúð verður þú allavega að hafa efni á útborguninni. Þú getur ekki sagst eiga íbúð ef þú bara leigir og borgar mánaðarlega greiðslu til að vera í henni... ekki satt?
Þú sérð kannski ekki mun á því hvort lánið er 60% eða 95% af verði bílsins. Mér finnst hins vegar stór munur á því. Sá sem er með 60% lán á þá 40% af bílnum í mínum huga, hinn 5%. Þess vegna finnst mér 100% lán vera sama og eiga 0% í bílnum!!!
Varðandi það að þetta sé leiðindakomment hjá mér til að skemma þráðinn þá vísa ég því nú bara á bug. Ég var ekki einu sinni að kommenta á þennan blessaða bíl eða .. eiganda .. hans. Ég var að kommenta vegna ummæla sem komu frá Fart í þráðnum varðandi að lán væru í lagi.
Ég skal alveg viðurkenna að þessi umræða er ekki til fyrirmyndar í þræðinum, enda tók ég hana út til að halda þessu fyrir utan upphaflega þráðinn. Þar sem þetta gerist, þá er stofnendum alltaf velkomið að hafa samband við stjórnendur sem geta gert þetta sé málið komið vel út fyrir efni upphaflega þráðsins. Eigandi þráðsins gerði það nú ekki í þessu tilviki heldur gerði ég það upp á mitt einsdæmi.
Hvaða dæmi hefur þú um að ég sé að koma með leiðindakomment í þræði hér á spjallinu???
Endilega komdu með komment á verðið á M5-inum hjá mér. Ég vil gjarnan fá rök fyrir því að ég sé að okra eins og þú ert að vísa í.
Hvar var að greina hroka frá mér í ummælum mínum?
Fólk hefur mismunandi skoðanir, en ég hef hingað til ekki staðið í þeirri meiningu að í mínum skoðunum kæmu fram hroki barnalegheit og leiðindar komment á þessum spjallvef.
ég er viðkvæmur fyrir því hvað sumir (oftast sömu aðilar) þurfa alltaf að koma með leiðindarkomment, í posta hjá mönnum, hroki ekkert annað, það er sá þefur sem ég skynja.....
hef ekki kynnt mer hversu hátt lán aron er með á SRT8 og eða hvort hann sé fullveðsettur, eða yfirveðsettur jafnvel, eins og tíðgast í dag.
en það er matsatriði hvers og eins, þ.a.s. hvað menn eru til í að borga fyrir bílana. þó bíll sé auglýstur á yfirtöku (eins og oft er her og annarstaðar) er það ekki endilega það sama og bíllinn sé eignarlaus.
En ég er ekki þessi týpa sem skítur yfir menn. eða kem með leiðindar skítakomment inn á posta, þannig að ég er ekkert að fara skíta yfir neitt hjá þér SÆMI, sýnist bíllinn og verðið vera bara í góðu lagi.,
það sem ég meinti, að ég gæti bullað eitthver leiðindi, sem ég hefði ekkert í höndunum yfir, enjú þóst hafa það.
Bara það!! gæti haft áhrif á suma, og þar að leiðindi skemmt jafnvel sölu á bílnum.
það sem ég og aðrir skynjum hroka, getur verið að það finnist þér vera eðlilegt, ætla ekki fara nánar út í það.
ekkert illt meint.
Þetta er mín meining, á öllu þessu
kv bæzi