by JOGA » Thu 31. Jan 2008 20:26
Ég hef keypt bíl tvisvar í Bæverjalandi og bæði skiptin keyrt hann í skip.
Þetta virkar þannig (í mjög grófum dráttum):
1. Finnur bíl sem þú ætlar að kaupa
2. Ferð á skráningarstofuna úti með eigandanum og færir bílinn á þitt nafn. Þeir klippa á skráningarskírteinið og skrá bílinn "úr landi".
3. Ferð og kaupir tryggingu. Ég keypti hjá þýska FÍB þ.e. ADAC. Þú getur fengið tryggingu í nokkrar vikur og jafnvel lengur minnir mig.
4. Ferð í "verslun" sem selur númeraplötur, oft nálægt skráningarstofunni og færð bráðabirgðanúmer á bílinnþ Þarna er oft hægt að kaupa tryggingar líka.
5. Keyrir bílinn í flestum Evrópulöndum þar til tryggingin rennur út.
(Það er orðið svolítið síðan ég gerði þetta seinast svo ég gæti verið að ruglast á röðinni aðeins en þetta er það sem þarf að gera í grófum dráttum).
Svo mannstu bara að panta flutning heim og halda vel utan um öll skjöl sem þú færð í hendurnar til að flytja fyrir skráningu hér heima.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir