Nýr Meirihluti í Borgarstjórn

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby Hannsi » Thu 24. Jan 2008 16:41

saemi wrote:Það er skömm að því að þú skulir vera á þessum launum sem þú talar um. Fyrir þetta vinnuframlag ættir þú að vera allavega á þreföldum þessum launum. Ég skil ekki af hverju þú ert að vinna þarna, eina skýringin hlýtur að vera von um stórbreytingu handan við hornið með betri kjörum... Eins og atvinnuástandið er í dag þá ætti enginn fullfrískur ungur karlmaður sem nennir að vinna að þurfa að vinna á þessum launum.

Ef fyrirtækið sem þú ert að vinna fyrir sér sér ekki sóma í því að greiða mannsæmandi laun, þá er það á ábyrgð starfsfólksins að krefjast hærri launa. Það er til lítils að kvarta yfir því að eigendur borgi manni ekki nógu góð laun, maður verður annaðhvort að knýja fram hærri laun með samstöðu og samningum eða fara annað. Þú gætir verið á hærri launum með að vinna á kassa í matvörubúð. Það er slegist um fólk á vinnumarkaðinum eins og staðan er í dag.


Það eru nánast eingöngu erlent fólk að vinna já þessu fyrirtæki við erum til dæmis að vinna hjá pabba 3 íslendingar og eru íslendingrnir einu sem varta því útlendingarnir hafa aldrei fengið jfn góð laun. Þannig ef við 3 sem eru þarna gerum eitthvað væri bara fundið pólverja í starfið. Mjög svo satt að þetta séu skömmustuleg laun en ég reyni og reyni að inna mér aðra vinnu en lítið í boði á suðurnesjunum. Tala nú ekki um það að ég er proflaus og erfitt aðfá vinnu utan þessa litla sveitafélags. Svo líka vona ég að btri kjör séu á nsta leiti þar sem ég mun ræða við pabba minn um mikla launa hækkun eða ég hætti að mæta (sem hann mun ekki láta gerast)
Svo er ég líka einmitt að vonast að komast á frystitogara hjá fyrirtækinnu ;)
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby bimmer » Thu 24. Jan 2008 16:55

Hannsi wrote:Svo ég taki nú mig sem dæmi þá er ég að vinna 40-60 tíma á viku eða 184-270 tíma á mánuði, fyrir skatt ef ég er að vinna 184 tíma á mánuði er ég að fá skitinn 135600kr!!!! Og nú spyr ég vernig mundu þið lifa af mánuð á 116 þús kr??????


Fáðu þér aðra vinnu STRAX!!

Það er verið að taka þig í rassgatið og það hefur ekkert með Sjálfstæðisflokkinn að gera.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Hannsi » Thu 24. Jan 2008 16:58

bimmer wrote:
Hannsi wrote:Svo ég taki nú mig sem dæmi þá er ég að vinna 40-60 tíma á viku eða 184-270 tíma á mánuði, fyrir skatt ef ég er að vinna 184 tíma á mánuði er ég að fá skitinn 135600kr!!!! Og nú spyr ég vernig mundu þið lifa af mánuð á 116 þús kr??????


Fáðu þér aðra vinnu STRAX!!

Það er verið að taka þig í rassgatið og það hefur ekkert með Sjálfstæðisflokkinn að gera.

enn og aftur erfitt

sótti um í bænum og var að vina þar og kom svo í ljós að ég var að fá VERRI laun þar sammt lofað betri
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby Djofullinn » Thu 24. Jan 2008 17:29

Þú getur fengið þér vinnu á kassa í Bónus fyrir hærri laun :!:

Ef þú ert ekki að fá betri störf/laun en þetta þá ert þú bara að sækja um röng störf eða hjá röngum fyrirtækjum.
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby gstuning » Thu 24. Jan 2008 18:03

Það er álíka vel borgað í póstinum fyrir 170tíma.

135k útborgað í dag er hneysklanlegt.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Vargur » Thu 24. Jan 2008 18:53

Ég skil ekki hvernig menn sem styðja sjálfstæðisflokkin geta stutt þetta. Þeirra stefnu er kastað út um gluggan og maður sem fékk örfá atkvæði leggur rreglurnar. Ömurlegt !
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby IvanAnders » Thu 24. Jan 2008 19:20

Einn maður var borgarstjóraefni ákveðins flokks í síðustu kosningum....
Hann og hans flokkur fengu hvað? 5% atkvæða???

Sá maður er borgarstjóri í dag!

Meikar þetta sens?
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Postby Kristjan » Thu 24. Jan 2008 19:20

Þetta er alveg rétt hjá svezel, ef maður nær sér ekki í einhverja menntun þá er maður royally fucked og það er alveg sama hvaða stjórnmálaflokkur er við völd.

Ómenntað fólk er ekkert með betri laun í þeim löndum þar sem vinstri stjórnir ráða lögum og lofum.
Last edited by Kristjan on Thu 24. Jan 2008 22:35, edited 1 time in total.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby IngóJP » Thu 24. Jan 2008 19:26

Kristjan wrote:Þetta er alveg rétt hjá svezel, ef maður nær sér ekki í einhverja menntun þá er maður royally fucked og það er alveg sama hvaða stjórnmálaflokkur er við völd.

Fólk er ekkert með betri laun í þeim löndum þar sem vinstri stjórnir ráða lögum og lofum.


Það er alveg rétt í flestum tilvikum,,, Ég sjálfur er ekki með neina menntun enn sem komið er.... En ég er ekki á kassakaupi en auðvitað er ekki alltaf þannig
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby saemi » Thu 24. Jan 2008 20:12

Það meikar náttúrulega engan sens að þessi maður sé borgarstjóri miðað við hvernig kosningarnar fóru.

Hins vegar er ég persónulega sáttur við hann, alveg til í að gefa honum séns. Ég hef fulla trú á að hann standi sig vel.

En ég er nú ekki sammála því að stefnu Sjálfstæðisflokksins sé kastað út um gluggann. Þessir flokkar eru nú líkastir að stefnumálum af öllum flokkunum, eins og sást best á að þeir byrjuðu fyrstir að ræða saman á sínum tíma um samstarf.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby fart » Thu 24. Jan 2008 20:25

Eina vitið er að efna til kosninga...

Come to think of it .. þá er líklega það eina af viti sem Dagur B hefur sagt um ævina.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Bjarkih » Thu 24. Jan 2008 20:35

Jónas wrote:lawl, finnst þér ~35% skattur hár?

Skoðaðu löndin í kringum okkur.

Og ekki segja að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekkert gert, skoðaðu hagsöguna.


Nákvæmlega, hérna hafa þó næstum allir vinnu. Ef þú hinsvegar skoðar lönd sem hafa verið undir stjórn félagshyggju flokka eins og Svíþjóð þar sem sósíaldemókratar hafa ráðið í áratugi þá hefur atvinnuleysi þar verið um 10% Hvernig er það að gera eitthvað fyrir litla manninn? Laun þar eru mun lægri en hér en skattarnir hærri. Vissulega er ódýrara að lifa en gæðin á matvörum, húsnæði og slíku eru langt frá því sem þekkist hérna. Allavega kvarta ég ekki yfir sjálfstæðisfloknum, þeir koma þó einhverju í verk í staðinn fyrir að tala og lofa endalaust og koma engu í verk, nefndu eina vinstri stjórn hér á landi sem kom einhverju góðu til leiðar fyrir fólkið í landinu.
Varðandi flugvöllinn í Reykjavík sem vinstri menn vilja í burtu þá get ég ekki séð hvernig það er að hugsa um litla manninn því að ef hann yrði lagður niður þá myndi það bitna verst á öryrkjum og þeim sem þurfa að leita sér lækninga til höfuðborgarinnar. Reykjvíkingar virðast í þessu máli hafa gleymt því að þeir hafa vissar skildur sem höfuðborg! Hvað ætli það séu margir miljarðar sem streyma til borgarinnar vegna þess að öll stjórnsýsla og stofnanir eru þar? Eitthvað verða þeir að leggja á sig í staðinn.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby Jónas » Thu 24. Jan 2008 21:57

Ég get ekki séð hvernig það getur verið slæmt fyrir íslenskan efnahag að umhverfið sé gott fyrir fyrirtæki!

Eftir að skattur var lækkaður á fyrirtæki í 18% hefur aldeilis mikið gerst hérna og þvílíkur peningur sem hefur streymt inn í ríkiskassann.

Auðvitað er ALLTAF auðvelt að dæma, en maður þarf aðeins að hugsa.

Vinstri stjórn = gjaldþrot.

VLF = C + I +G + NX ! 8)
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby ValliFudd » Tue 29. Jan 2008 18:44

Pólítík er ekki mín sterka hlið, svo ég spyr.. Ef Ólafur fer úr landi í einhverja daga á ráðstefnu sem þessa, er hann enn borgarstjóri í rvk eða er hann leystur af á meðan af Margréti? Þar sem hann er jú erlendis og á erfitt með að sinna borgarstjórastöðunni hér heima?

Er bara að spá í vesenið sem fylgir þessu öllu, ef hann fer í veikindafrí fer allt til helvítis aftur, á það sama við með svona útlandaferðir? Bara að spá hvort þessi óróleiki sé strax farinn að bitna á borgarbúum?

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/01/29/borgarstjori_aetlar_ekki_a_hofudborgarradstefnu/#
innlent | mbl.is | 29.1.2008 | 18:29
Borgarstjóri ætlar ekki á höfuðborgarráðstefnu

Ólafur F. Magnússon, nýkjörinn borgarstjóri í Reykjavík, hefur tekið þá ákvörðun að sækja ekki höfuðborgarráðstefnu í Stokkhólmi um mánaðamótin.

Í tilkynningu frá skrifstofu borgarstjóra segir, að Ólafur vilji frekar einbeita sér að mikilvægum verkefnum, sem bíða á vettvangi borgarinnar og kynna sér mál þar sem hann sé nýtekinn til starfa. Þýðingarmikið sé að skapa festu og góðan vinnufrið hjá Reykjavíkurborg eftir atburði undanfarinna daga.
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Tue 29. Jan 2008 18:50

Afsakið ég asnaðist til að lesa "háða" blaðið :)

http://www.visir.is/article/20080129/FRETTIR01/80129088

Stöð 2, 29. jan. 2008 18:29
Ólafur F. fer ekki á reglulegan samráðsfund borgarstjóra Norðurlandanna

Borgarstjórinn í Reykjavík, Ólafur F. Magnússon, fer ekki á reglulegan samráðsfund borgarstjóra Norðurlandanna, sem hittast í Stokkhólmi á morgun. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður borgarráðs, fer í hans stað ásamt Hönnu Birnu Kristjánsdóttur forseta borgarstjórnar og Gunnari Eydal skrifstofustjóra borgarinnar.

Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er þetta í fyrsta sinn eins langt og menn muna að borgarstjórinn í Reykjavík mæti ekki til fundar borgarstjóra Norðurlandanna. En fundir borgarstjóranna eru haldnir til skiptis í höfuðborgum landanna. Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi sagði í samtali við fréttastofuna í dag að Ólafur hafi ekki talið sig geta sótt fundinn vegna anna, enda ný tekinn við embættinu. Hvorki náðist í Vilhjálm né Ólaf vegna þess máls í dag.
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 8 guests