Bíllinn hjá mér er búinn að vera bilaður í nokkra mánuði. Og þessvegna hefur hann bara staðið úti. Um daginn sá ég að það var kominn smá raki inn í bílinn og mygla byrjuð að myndast á sætisbeltum, eitthvað sem ég var ekki beint par hrifinn af á að sjá. Þetta er víst afþví að glansinn, semsagt einhver vörn í beltunum er farinn og þessvegna sest raki í beltin.
Jæja bílinn er kominn inn í skúr og ég er búinn að þrífa mygluna en auðvitað kæri ég mig ekkert um að mygla byrji að myndast aftur.
Það voru tveir sem bentu mér á eitthvað sem heitir Silicon Sámur og á að vera í sprey formi. Þetta væri eitthvað svipað og menn settu á tjaldvagna hjá sér.
Núna er ég búinn að fara á 4 bensínstöðvar og í N1 (Bílanaust) og enginn virðist kannast við þetta Silicon Sámur.
Er einhver hérna sem kannast við þetta Silicon Sámur og veit þá hvar ég get fengið þetta, þetta á víst að vera í svörtum brúsum með gulum stöfum.
Eða ef einhver veit um einhverja aðra aðferð eða efni sem ég gæti prófað, endilega allar hugmyndir vel þegnar.

