Hrikalega klaufalegt, en svo ég taki nú aðeins upp hanskann fyrir greyið þá vissi hann nú alveg að þetta væri beinskipt. Bíllinn er í gír, hann stígur á kúplinguna og missir hana svo óvart upp, en klaufalegt samt sem áður.
Ég var einu sinni staddur á benzínstöð og var að skipta um peru fyrir bremsuljósið, bið benzínafgreiðslumann að fara inn í bílinn hjá mér til að stíga á bremsuna sem hann og gerir. Ég stend fyrir aftan bílinn og bið hann að stíga á bremsuna, en ekkert gerist. Hmmm, ég fer þá til hans og sé hvað er í gangi. Ég segi við hann: "Heyrðu vinur, þetta er kúplingin" , þá segir gaurinn: "Ég og bílar...

, heyrðu þú segir engum frá þessu er það nokkuð?"
