Ég fékk loksins bílinn minn í gær, BMW E46 325i 2004 árgerð. Ég flutti hann inn frá USA. Mig langaði bara að spyrja hvort þið væruð með einhver góð tips? Þetta er fyrsti BMWinn minn og jafnframt fyrsti bíllinn minn
Þegar ég meina tips þá er það bara hvað sem ykkur dettur í hug. Hvernig ég á að þrífa hann og hversu oft? Á ég að fara með hann í B&L og láta þá kíkja á hann og gá hvort hann sé ekki alveg rock solid? Osfrv osfrv.
Annars er ég bara mjög sáttur með gripinn, skellti vetrardekkjum undir hann í gær og var glaðasti maðurinn í umferðinni á leiðinni í vinnuna í dag!





