Sara Rós var ein heima með börnin sín þrjú, tveggja ára dreng og tveggja mánaða tvíbura, þegar mennirnir réðust inn vopnaðir öxum. „Þeir sögðu bara hvar er fokking Addi eða eitthvað sko. Ég veit ekki hvernig ég má orða þetta," segir Sara. Hún telur að mennirnir hafi verið að leita að einhverjum tilteknum mönnum sem tengjast henni ekki. "Þeir voru mjög reiðir og alveg útúrdópaðir," segir hún.
Þetta eru ekki einu skakkaföllin sem Sara Rós og Sverrir Björn, eiginmaður hennar, hafa lent í að undanförnu, því að bílnum þeirra var stolið þann 4. janúar, en fannst gerónýtur daginn eftir. Sara segir að þjófarnir séu ekki fundnir.
Stórhættulegt að búa í gettóinu
