Samkvæmt lögregluskýrslu hafði greinilega verið ekið þvert yfir hringtorgið og einnig ekið á lofttúður, sem standa upp úr jörðinni á miðju torgsins. Á vettvangi fannst skráningarnúmer bíls ásamt braki og bíllinn fannst síðan á bílastæði við hús ekki langt frá.
Þar kom kona til dyra og kannaðist við bílinn og sagði að eiginmaður sinn hefði verið á honum. Konan sagðist ekki vita hvort eiginmaður sinn væri heima en nokkru síðar kom maðurinn til dyra áberandi ölvaður. Hann neitaði að hafa ekið bílnum um kvöldið og neitaði einnig að gefa upp hver hafi verið ökumaður.
Daginn eftir kom konan á lögreglustöðina og sagðist hafa ekið bílnum þessa nótt.
Tryggingafélagið taldi það vægast sagt ótrúverðugt að eiginkonan hefði komið á lögreglustöðina eftir hádegi daginn eftir og sagst sjálf hafa ekið bílnum. Við blasti að um væri að ræða samantekin ráð af hálfu hjónanna til þess að hafa vátryggingabætur af tryggingafélaginu á fölskum forsendum.
Þetta er jú augljóst EN, samkvæmt þessu er ekkert talað um hvort blóðsýni hafi verið tekið úr eiginmanni og vitnisburði konunnar bara hent útúm gluggann.. Því "Tryggingarfélag taldi það vægast sagt ótrúverðugt" og þá þurfa þeir ekki að borga

